A A A
Í gær var gengið frá fastlínusambandi fyrir Grunnskóla Súðavíkur. Grunnskólinn í Súðavík er annar grunnskólinn á Vestfjörðum sem fær sítengingu utan Ísafjarðar en sl. vetur var grunnskólinn í Bolungarvík tengdur með sítengingu. Jafnframt er komið í pöntun fastlínusamband á Hólmavík en grunnskólinn þar verður væntanlega næstur í samband....
Meira
Nú er á ferð um landið keðjubréf sem skorar á fólk að senda ungum dreng, Steve Detry, í Belgíu nafnspjald svo hann komist í heimsmetabókina. En hver er sannleikurinn um keðjubréfin og afhverju vill Steve Detry að keðjubréfið verði stöðvað? Lesið allt um það hér....
Meira
Breyting hefur orðið á útsendingu Skjávarps á Ísafirði. Skjár 1 á nú meirihlutan í Skjávarpinu og hefur lagt niður útsendingar Skjávarps á Ísafirði....
Meira
Víðnetssamband Snerpu til Bolungarvíkur var í morgun stækkað í 512 kbps. Með þessu stækkar flutningsgeta Snerpu til Bolungarvíkur fjórfalt en sambandið var áður 128 kbps....
Meira
Tölvu- og netfyrirtækið Snerpa á Ísafirði verður umboðssöluaðili þjónustu frá Landssímanum samkvæmt samningum sem undirritaðir voru milli fyrirtækjanna í dag. Um er að ræða þrjá aðskilda samninga, sem fela m.a. í sér að Snerpa selur símaáskriftir sem og ISDN grunn- og stofntengingar ásamt ADSL-tengingum frá Símanum. Síminn hefur undanfarið gengið til samninga við fyrirtæki sem selja tæknibúnað í því augnamiði að fjölga möguleikum viðskiptavina sinna og hefur Snerpa nú bæst í hópinn....
Meira
Radíómiðun hf í Reykjavík hefur valið AVP sem veiruvörn fyrir sig. ,,Undanfarið hefur mikið borið á nýjum veirum og var kominn tími til þess að fá

veiruvarnir sem uppfæra sig sjálfar og eru með nýjar uppfærslu á hverjum degi, undanfarna daga þegar nýjar veirur hafa verið að skjóta upp kollinum þá erum við öruggari" sagði Helgi Reynisson umsjónarmaður tölvumála hjá Radíómiðun hf.
...
Meira
Örbylgjukerfi Snerpu er nú komið í gang á Suðureyri. Að sögn Einars Ómarssonar fyrsta viðskiptavinarins sem tengdist inn á kerfið þá skilur hann ekki hvernig í ósköpunum menn hafa farið að áður en sítengingar komu til sögunar, hraðinn á sambandinu er mjög góður og allt virkar mjög vel....
Meira
Snerpa ehf á Ísafirði hefur nú tekið í notkun loftnetsbúnað í Bolungarvík og á Suðureyri. Eru þá bæirnir á Vestfjörðum orðnir 3 sem eru sítengdir við Internetið með Loftneti Snerpu en á Ísafirði var Loftnetið tekið í notkun um síðustu áramót....
Meira
Eftir sameiningu Snerpu og Vestmarks undir nafni Snerpu hefur verið unnið að því að samræma tæknilegar lausnir á starfsemi fyrirtækjanna. Eitt af þeim verkefnum sem í gangi eru, er uppsetning örbylgjusenda fyrir gagnaflutninga. Það verkefni er vel á veg komið og eru nú þegar komnir inn nokkrir notendur í það kerfi. Þá er einnig unnið að uppsetningu á ADSL-þjónustu fyrir viðskiptavini Snerpu.
...
Meira
Undanfarin þrjú ár hefur Snerpa verið að byggja upp eigið fjarskiptanet á Vestfjörðum. Tilgangurinn með því er að bjóða öllum fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu upp á sama möguleika til fasttengingar við Internet og bjóðast á stærri stöðum á landinu....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00