Vegna fyrirhugaðrar vinnu Mílu við ljósleiðaralagnir í Tæknigarði á tímabilinu kl. 9-12 þriðjudaginn 7. febrúar, má búast við að sambönd Snerpu við RIX (skiptistöð innanlandsumferðar) og Hringiðuna falli út á tímabilinu. Einstök sambönd, þ.e. innanlandsumferð og samband við NorduNET falla út á meðan en ættu að flytjast sjálfkrafa á aðrar leiðir. Venjulega eru varaleiðir um net Símans en þar sem þeirra tenging við RIX rofnar einnig á sama tíma getur þetta þó haft þau áhrif að umferð til einstakra aðila innanlands gæti flust milli útlandasambanda og eykst þá svartími við þau verulega á meðan. Truflanir vegna þessa ættu ekki að verða meira en um ein klst.
7. febrúar: Míla flýtti vinnu sinni og var útfall á sambandinu kl. 06:05 til kl. 06:25 - Flest sambönd ef ekki öll virðast hafa farið eðlilega yfir á varaleiðir og til baka.
Póstlisti
Tilkynningar
- Slitinn ljósleiðariÍ lagi
- Rof í TæknigarðiÍ lagi
- Rafmagnstruflanir valda sambandsleysiÍ lagi
- Truflanir á netkerfiÍ lagi
- Uppfærsla á ljósleiðarasambandiÍ lagi
- Viðhald á póstþjóniÍ lagi
- Bilun á ÞingeyriÍ lagi
- Bilun í IP-neti og útlandasamböndumÍ lagi
- Straumlaust í TæknigarðiÍ lagi
- Fyrirvaralaust rof við nafnaþjónaÍ lagi
- Sjá alla liði
- Eldri færslur

Björn Davíðsson | miðvikudagurinn 1. febrúar 2012 -