Cover
þriðjudagurinn 8. desember 2009

Aðvörun! fiskað eftir Facebook aðgöngum ...

Meðfylgjandi póstur er farinn að dreifast um netið og lítur hann eins út og verið sé að biðja notendur um að uppfæra upplýsingar um sig á Facebook. Þar sem vefurinn er mjög vinsæll sér Snerpa sérstaka ástæðu til að vara við slíkum póstum. Sé smellt á tengilinn í skeytinu er viðkomandi fluttur á vefsíðu í Brasilíu og boðið að opna viðhengi sem er væntanega smygildi (spyware) sem getur mögulega stolið upplýsingum úr tölvu notandans eða jafnvel notað hana til að senda út ruslpóst.

Notendur eru hvattir til að henda svona póstum, sé ekki 100% öruggt að þeir séu ekta og uppgefin vefslóð í þeim rétt. Svo sem sjá má á þeirri vefslóð sem fylgir póstinum, sem er http://www.facebook.com.jjjiok.org.uk/ er sitthvað grunsamlegt, lénið er breskt, skráður eigandi lénsins er sagður í Belgíu og IP-talan sem vefþjónninn er staðsettur á er staðsettur í Brasilíu. Kvartað hefur verið til þeirra sem selja aðgang að þessum tiltekna vefþjóni en síðan er enn virk þegar þetta er ritað.


Avatar Björn Davíðsson

Upp