Aukinn aðgangshraði hjá Snerpu
Snerpa hefur um nokkurn tíma unnið að því að auka afköst í ljósleiðarakerfi sínu með það að markmiði að veita betri þjónustu í sífellt kröfuharðara umhverfi. Þannig var byrjað að bjóða 100 Mbps afkastagetu þegar Snerpa fór af stað með þjónustu á ljósleiðara en það stjórnaðist mest af þeim búnaði sem í boði var og kostnaði við sambönd milli landshluta og til útlanda.
Það hefur tafið uppbygginguna nokkuð að síðan heimsfaraldurinn hófst hefur verið verulegur skortur á aðföngum og afgreiðsluhraða á þeim. Þannig hefur tekið upp í nokkra mánuði að fá afhentan búnað og oft munað litlu að netþjónustan væri ,,uppseld" vegna endurtekinna frestana á pöntunum. Þetta á bæði við um búnað en einnig ljósleiðara og rör en þó hefur okkur tekist að laga okkur að aðstæðum, t.d. með því að leggja rör á meðan ljósleiðara vantaði og blása ljósleiðara í þegar grafin rör þegar rörin skorti.
Ákveðið var fyrir nokkru síðan að hækka aðgangshraða notenda úr 100 Mbps í 500 Mbps og var þá fenginn búnaður (ljósbreytur) sem styður allt að 1000Mbps (1Gíg) heim til notenda. Flestir notendur eru nú komnir með 1 Gíg ljósbreytur og verður skipt út eftir þörfum ljósbreytum hjá þeim sem eru enn með 100Mbps ljósbreytur. Til að ljúka breytingum upp í 1 Gíg þarf m.a. að stækka sambönd milli byggðarkjarna en þær breytingar eru þegar hafnar og mun ljúka á næstu mánuðum.
Við eigum þó ekki von á að notendur sjái að þessar breytingar valdi neinum straumhvörfum, flöskuháls í netsamskiptum er venjulega ekki á ljósleiðaraheimtaugum en þetta mun vissulega skipta máli eftir því sem tengingar þróast t.d. með hærri upplausn á sjónvarpsefni og streymi sem er sú þjónusta sem er stærsti hlutinn af nettengingum nú og í nánustu framtíð.