
þriðjudagurinn 4. ágúst 2015
Einar Bragi heldur á vit ævintýranna
Þann 31.júlí lét Einar Bragi Guðmundsson af störfum eftir 5 ára starf í sölu- og þjónustudeild Snerpu og hélt á vit nýrra ævintýra á mölinni suður með sjó.
Einar Bragi hóf fyrst störf hjá Snerpu sem afleysingarmaður á verkstæði sumarið 2010 en hafði verið fastráðinn undanfarin ár.
Við samstarfsfólk hans þökkum honum kærlega fyrir samstarfið í gegnum árin og óskum honum æðislega góðs gengis í næstu verkefnum!
