
miðvikudagurinn 3. júlí 2024
Gígabit á Eyrina á Ísafirði
Íbúar á Eyrinni á Ísafirði eiga nú kost á Gígabit ljósleiðara frá Snerpu. Þeir notendur sem þegar voru komnir með 500 Mbps voru færðir sjálkrafa á gígabit en notendur með 100 Mbps endabúnað geta jafnframt óskað eftir stækkun á sínu netsambandi og munum við þá heimsækja þá og skipta um endabúnað þeim að kostnaðarlausu.
Enn er unnið að því að uppfæra aðra þéttbýliskjarna og dreifbýli umhverfis þá í gígabit og má búast við tilkynningum um það á næstu dögum og vikum.
