Cover
miðvikudagurinn 12. nóvember 2003

Lína.Net og Snerpa tengjast beint

Snerpa hefur nú gengið frá beintengingu við Línu.net um RIX netskiptistöðina. Þar með er Snerpa komin með beintengingu við allar sjálfstæðar Internetveitur (e. autonomous systems) á Íslandi. Beintenging þýðir að milliliðalaust samband er sett upp þannig að komi upp truflanir í samskiptum við eina netveitu, að þá eru áhrif þeirra einungis bundin við viðkomandi netveitu en sé ekki um beintengingu að ræða þá er tengingu beint um aðrar netveitur og truflanir í slíkum tilfellum verða þá umfangsmeiri. Netveitur hér á landi nota allar að einhverju leyti óbeinar tengingar sín á milli en Snerpa er fyrsta netveitan hérlendis sem kemur á beintengingu við allar sjálfstæðar netveitur.

Tilgangurinn með beintengingu er að dreifa álagi betur, auka rekstraröryggi og auka gæði netsambanda. Í rekstri stórra netkerfa koma ávallt upp aðstæður þar sem þarf að rekja orsakir truflana og með því að setja upp beintengingar er umfang slíkra truflana lágmarkað og bilanagreining einfölduð. Einnig flæðir umferð beint á milli kerfa í stað þess að fara um netkerfi þriðja aðila og lækkar það jafnframt umferðartíma og bætir nýtingu netsambanda.

Um beintenginguna við Línu.Net er einnig með skömmum fyrirvara hægt að tengjast til útlanda um útlandasamband Línu.Nets.


Avatar Snerpa

Upp