
Ný vefmyndavél á Dynjanda
Ný vefmyndavél Snerpu sem sýnir fossinn Dynjanda og nánasta umhverfi hans var gangsett á síðasta föstudag en hana má finna hér.
Snerpa á og rekur vélina sem er á þjónustuhúsi Umhverfissstofnunar sem veitti góðfúslega leyfi fyrir nauðsynlegri aðstöðu á húsinu.
Á sama mastri og myndavélin er fest á er einnig loftnet sem veitir WiFi þjónustu til gesta á svæðinu gegn lágu gjaldi í sjálfsafgreiðslu.
Myndavélin er búin snjóbræðslukerfi sem mun koma í ljós í vetur hvernig virkar.
Af öðrum myndavélum er að frétta að vefmyndavélin á Flateyri bilaði fyrir nokkru síðan en hún er í eigu Önfirðingafélagsins sem er að skoða hvar nýrri vél er best komið fyrir en hún var á óhentugum stað með tilliti til viðhalds og erfitt að komast að henni. Vonandi birtast því á ný myndir frá Flateyri innan ekki of langs tíma.
