
Ný vefmyndavél á Hrafnseyri
Snerpa hefur nú gangsett vefmyndavél á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Myndavélin er staðsett á aðalbyggingunni og vísar yfir hlaðið á Hrafnseyri og yfir fjörðinn til suðvesturs.
Það hefur verið smá lúxusvandamál í gangi hjá okkur hvað vefmyndavélarnar eru vinsælar og við erum að undirbúa að setja upp fleiri vélar og öflugari miðlunarþjón fyrir þær. Við skiptum um miðlunarþjón í síðustu viku og þrefölduðum minni í honum en sjáum fram á að þurfa enn öflugari vél fljótlega, td. er Ísafjarðarvél nr. 1 oft sein að taka við sér enda mest skoðaða vélin. Við biðjum áhorfendur að sýna okkur þolinmæði vegna þessa en til stendur að taka í gegn eftir sumarfríin síðuna þannig að hún verði snjallsímavæn en sumir snjallsímar ná ekki myndinni eins og er.
Skoða má myndavélina og aðrar hér.
