Monday, 05. October 2026
Ný vefmyndavél á Patreksfirði
Ný vefmyndavél hefur verið virkjuð á Patreksfirði en það er Lionsklúbbur Patreksfjarðar sem hafði veg og vanda af uppsetningu hennar.
Myndavélin er staðsett á húsnæði útgerðarfyrirtækisins Odda hf. og snýst hún þar og sýnir bæinn og höfnina.
Nú eru sautján virkar vefmyndavélar á Vestfjörðum sem Snerpa sendir frá í samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu.