Cover
fimmtudagurinn 12. október 2023

Snerpa er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2023 fjórða árið í röð

Snerpa er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fjórða árið í röð samkvæmt mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Listi yfir Fyrirmyndarfyrirtækin 2023 var birtur í Viðskiptablaðinu í dag en 2,8% íslenskra fyrirtækja komast á listann.

Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2022 og 2021 en rekstrarárið 2020 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2022 og 2021.
  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 40 milljónir króna á rekstrarárunum 2022 og 2021.
  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2022 og 2021.
  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fylgir Viðskiptablaðinu. Blaðið er opið öllum og hægt er að skoða það hér.


Avatar Sturla Stígsson

Upp