Útbreiðsluáætlun og framkvæmdir í Smartnetinu
Smartnet er háhraðanet Snerpu og byggir á sömu tækni og Ljósnet Mílu sem Vodafone, Síminn og fleiri internetveitur bjóða upp á. Smartnet býður upp á gríðarlega öflugar gagnatengingar með hraða allt að 70 Mbit/s til notenda en til samanburða er hámarks hraði 50 Mbit/s á Ljósnetinu.
Uppi eru hugmyndir hjá Snerpu að fara í stækkun á Smartneti á þessu ári og langar okkur að athuga áhuga íbúa á þessum svæðum fyrir þeim valmöguleika og hvort þeir hafi áhuga á að fá Smartnet.
Þær framkvæmdir sem stefnt er á að fara í sumarið 2015
- Urðavegur 78 og 80
- Múlalandsblokkir 12 og 14 og einnig Seljaland og Skógarbraut
- Stakkanes 2-18
- Blokkin við Fjarðarstræti 2-6
Þeir sem hafa áhuga á þessum svæðum fyrir Smartnetstengingum eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér.
Vodafone notar einnig Smartnet þannig að viðskiptavinir Vodafone geta einnig nýtt sér aukin netgæði sem framkvæmdirnar hafa í för með sér.
Skráning nú er til að láta okkur vita af áhuga þínum á sambandi. Haft verður nánara samband þegar mögulegt verður að tengja þig við Smartnetið, til staðfestingar á að þú hafir ennþá áhuga og viljir fá sambandið.