Tengingu radars á Sauðanesi lokið
Snerpa hefur síðan í júli unnið með Orkubúi Vestfjarða að plægingu á strengjum frá Klofningsdal við Flateyri, út eftir Sauðanesi og niður í Staðardal. Verkefnið í heild felur í sér varaleiðir fyrir ljósleiðara og rafmagn á milli Suðureyrar og Flateyrar.
Að auki opnaðist möguleiki á að koma fyrir fjarskiptastöð á Sauðanesi og í síðustu viku sáu Snerpa og Þotan um að koma fyrir radar á vegum Landhelgisgæslunnar yst á nesinu, ásamt tveimur staurum sem í munu verða farsímaloftnet sem munu þjóna Ingjaldssandi, miðunum úti fyrir og vonandi inn eftir Staðardal. Þá mun sjálfvirkt tilkynningakerfi skipa (AIS) færast úr Staðardal og upp í radarstöðina. Mun þetta hafa mikil og jákvæð áhrif á umferð skipa, sérstaklega strandveiðibáta og sjóstangveiðibáta, sem hafa verið utan hefðbundinnar drægni fjarskipta hingað til. Eftir er að plægja strengi frá fjallsbrúninni ofan við Klofningsdal niður á Flateyri og verður það gert næsta sumar eftir að snjóa leysir.
