- 1
1 Orðskviðir Salómons Davíðssonar, Ísraels konungs,- 2 til þess að menn kynnist visku og aga,
- læri að skilja skynsamleg orð,
- 3 til þess að menn fái viturlegan aga,
- réttlæti, réttvísi og ráðvendni,
- 4 til þess að þeir veiti hinum óreyndu hyggindi,
- unglingum þekking og aðgætni, -
- 5 hinn vitri hlýðir á og eykur lærdóm sinn,
- og hinn hyggni nemur hollar lífsreglur -
- 6 til þess að menn skilji orðskviði og líkingamál,
- orð spekinganna og gátur þeirra.
- Varastu slæman félagsskap
- 7 Ótti Drottins er upphaf þekkingar,
- visku og aga fyrirlíta afglapar einir.
- 8 Hlýð þú, son minn, á áminning föður þíns
- og hafna eigi viðvörun móður þinnar,
- 9 því að þær eru yndislegur sveigur á höfði þér
- og men um háls þinn.
- 10 Son minn, þegar skálkar ginna þig,
- þá gegn þeim eigi.
- 11 Þegar þeir segja: "Kom með oss!
- Leggjumst í launsátur til manndrápa,
- sitjum án saka um saklausan mann,
- 12 gleypum þá lifandi eins og Hel -
- með húð og hári, eins og þá sem farnir eru til dánarheima.
- 13 Alls konar dýra muni munum vér eignast,
- fylla hús vor rændum fjármunum.
- 14 Þú skalt taka jafnan hlut með oss,
- einn sjóð skulum vér allir hafa" -
- 15 son minn, þá haf ekki samleið við þá,
- halt fæti þínum frá stigum þeirra.
- 16 Því að fætur þeirra eru skjótir til ills
- og fljótir til að úthella blóði.
- 17 Því að til einskis þenja menn út netið
- í augsýn allra fleygra fugla,
- 18 og slíkir menn sitja um sitt eigið líf,
- liggja í launsátri fyrir sjálfum sér.
- 19 Þannig fer öllum þeim, sem fíknir eru í rangfenginn gróða:
- fíknin verður þeim að fjörlesti.
- Spekin prédikar sinnaskipti
- 20 Spekin kallar hátt á strætunum,
- lætur rödd sína gjalla á torgunum.
- 21 Hún hrópar á glaummiklum gatnamótum,
- við borgarhliðin heldur hún tölur sínar:
- 22 Hversu lengi ætlið þér, fávísir, að elska fávísi
- og hinir háðgjörnu að hafa yndi af háði
- og heimskingjarnir að hata þekkingu?
- 23 Snúist til umvöndunar minnar,
- sjá, ég læt anda minn streyma yfir yður,
- kunngjöri yður orð mín.
- 24 En af því að þér færðust undan, þá er ég kallaði,
- og enginn gaf því gaum, þótt ég rétti út höndina,
- 25 heldur létuð öll mín ráð sem vind um eyrun þjóta
- og skeyttuð eigi umvöndun minni,
- 26 þá mun ég hlæja í ógæfu yðar,
- draga dár að, þegar skelfingin dynur yfir yður,
- 27 þegar skelfingin dynur yfir yður eins og þrumuveður
- og ógæfa yðar nálgast eins og fellibylur,
- þegar neyð og angist dynja yfir yður.
- 28 Þá munu þeir kalla á mig, en ég mun ekki svara,
- þeir munu leita mín, en ekki finna mig.
- 29 Vegna þess að þeir hötuðu þekking
- og aðhylltust ekki ótta Drottins,
- 30 skeyttu ekki ráðum mínum
- og smáðu alla umvöndun mína,
- 31 þá skulu þeir fá að neyta ávaxtar breytni sinnar
- og mettast af sínum eigin vélræðum.
- 32 Því að fráhvarf fávísra drepur þá,
- og uggleysi heimskingjanna tortímir þeim.
- 33 En sá sem á mig hlýðir, mun búa óhultur,
- mun vera öruggur og engri óhamingju kvíða.
- Spekinni sungið lof
- 2
1 Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku- og geymir boðorð mín hjá þér,
- 2 svo að þú ljáir spekinni athygli þína,
- hneigir hjarta þitt að hyggindum,
- 3 já, ef þú kallar á skynsemina
- og hrópar á hyggindin,
- 4 ef þú leitar að þeim sem að silfri
- og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,
- 5 þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er,
- og öðlast þekking á Guði.
- 6 Því að Drottinn veitir speki,
- af munni hans kemur þekking og hyggindi.
- 7 Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna,
- er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega,
- 8 með því að hann vakir yfir stigum réttarins
- og varðveitir veg sinna guðhræddu.
- 9 Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur
- og ráðvendni, - í stuttu máli, sérhverja braut hins góða.
- 10 Því að speki mun koma í hjarta þitt,
- og þekking verða sálu þinni yndisleg.
- 11 Aðgætni mun vernda þig,
- og hyggindin varðveita þig,
- 12 til þess að frelsa þig frá vegi hins illa,
- frá þeim mönnum, sem fara með fals,
- 13 sem yfirgefa stigu einlægninnar
- og ganga á vegum myrkursins
- 14 sem hafa gleði af því að gjöra illt,
- fagna yfir illsku hrekkjum,
- 15 sem gjöra vegu sína hlykkjótta
- og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni,
- 16 til þess að frelsa þig frá léttúðarkonu,
- frá blíðmálugri konu sem annar á,
- 17 sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar
- og gleymt sáttmála Guðs síns,
- 18 því að hús hennar hnígur í dauðann,
- og brautir hennar liggja niður til framliðinna,
- 19 þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur,
- og aldrei komast þeir á lífsins stigu, -
- 20 til þess að þú gangir á vegi góðra manna
- og haldir þig á stigum réttlátra.
- 21 Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið,
- og hinir grandvöru verða eftir í því.
- 22 En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu,
- og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.
- Spekin veitir farsæl ár
- 3
1 Son minn, gleym eigi kenning minni,- og hjarta þitt varðveiti boðorð mín,
- 2 því að langa lífdaga og farsæl ár
- og velgengni munu þau veita þér í ríkum mæli.
- 3 Kærleiki og trúfesti munu aldrei yfirgefa þig.
- Bind þau um háls þér,
- rita þau á spjald hjarta þíns,
- 4 þá munt þú ávinna þér hylli og fögur hyggindi,
- bæði í augum Guðs og manna.
- 5 Treystu Drottni af öllu hjarta,
- en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
- 6 Mundu til hans á öllum þínum vegum,
- þá mun hann gjöra stigu þína slétta.
- 7 Þú skalt ekki þykjast vitur,
- óttast Drottin og forðast illt,
- 8 það mun verða heilnæmt fyrir líkama þinn
- og hressandi fyrir bein þín.
- 9 Tigna Drottin með eigum þínum
- og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,
- 10 þá munu hlöður þínar verða nægtafullar
- og vínberjalögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum.
- 11 Son minn, lítilsvirð eigi ögun Drottins
- og lát þér eigi gremjast umvöndun hans,
- 12 því að Drottinn agar þann, sem hann elskar,
- og lætur þann son kenna til, sem hann hefir mætur á.
- Sá er óhultur, sem varðveitir spekina
- 13 Sæll er sá maður, sem öðlast hefir speki,
- sá maður, sem hyggindi hlotnast.
- 14 Því að betra er að afla sér hennar en að afla silfurs,
- og arðurinn af henni ágætari en gull.
- 15 Hún er dýrmætari en perlur,
- og allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.
- 16 Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar,
- auður og mannvirðingar í vinstri hendi hennar.
- 17 Vegir hennar eru yndislegir vegir
- og allar götur hennar velgengni.
- 18 Hún er lífstré þeim, sem grípa hana,
- og sæll er hver sá, er heldur fast í hana.
- 19 Drottinn grundvallaði jörðina með visku,
- festi himininn af hyggjuviti.
- Fyrir þekking hans mynduðust hafdjúpin
- og drýpur döggin úr skýjunum.
- 21 Son minn, varðveit þú visku og gætni,
- lát þær eigi víkja frá augum þínum,
- 22 þá munu þær verða líf sálu þinni
- og prýði fyrir háls þinn.
- 23 Þá muntu ganga óhultur veg þinn
- og eigi drepa við fæti.
- 24 Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú ekki að hræðast,
- og hvílist þú, mun svefninn verða vær.
- 25 Þú þarft ekki að óttast skyndilega hræðslu,
- né eyðilegging hinna óguðlegu, þegar hún dynur yfir.
- 26 Því að Drottinn mun vera athvarf þitt
- og varðveita fót þinn, að hann verði eigi fanginn.
- Elskaðu náunga þinn
- 27 Synja eigi góðs þeim, er þarfnast þess,
- ef það er á þínu valdi að gjöra það.
- 28 Seg þú ekki við náunga þinn: "Far og kom aftur!
- á morgun skal ég gefa þér" - ef þú þó átt það til.
- 29 Brugga eigi illt gegn náunga þínum,
- þegar hann býr öruggur hjá þér.
- 30 Deil ekki við neinn að ástæðulausu,
- ef hann hefir ekki gjört þér neitt mein.
- 31 Öfunda ekki ofbeldismanninn
- og haf engar mætur á neinum gjörðum hans.
- 32 Því að andstyggð er sá Drottni, er afvega fer,
- en ráðvandir menn alúðarvinir hans.
- 33 Bölvun Drottins er yfir húsi hins óguðlega,
- en bústað réttlátra blessar hann.
- 34 Spottsama spottar hann,
- en lítillátum veitir hann náð.
- 35 Vitrir menn munu heiður hljóta,
- en heimskingjar bera smán úr býtum.
- Spekin í föðurhúsum
- 4
1 Heyrið, synir, áminning föður yðar- og hlýðið til, svo að þér lærið hyggindi!
- 2 Því að góðan lærdóm gef ég yður,
- hafnið eigi kenning minni!
- 3 Þegar ég var sonur í föðurhúsum,
- viðkvæmt einkabarn heima hjá móður minni,
- 4 þá kenndi faðir minn mér og sagði við mig:
- "Hjarta þitt haldi fast orðum mínum,
- varðveit þú boðorð mín, og muntu lifa!
- 5 Afla þér visku, afla þér hygginda!
- Gleym eigi og vík eigi frá orðum munns míns!
- 6 Hafna henni eigi, þá mun hún varðveita þig,
- elska hana, þá mun hún vernda þig.
- 7 Upphaf viskunnar er: afla þér visku,
- afla þér hygginda fyrir allar eigur þínar!
- 8 Haf hana í hávegum, þá mun hún hefja þig,
- hún mun koma þér til vegs, ef þú umfaðmar hana.
- 9 Hún mun setja yndislegan sveig á höfuð þér,
- sæma þig prýðilegri kórónu."
- 10 Heyr þú, son minn, og veit viðtöku orðum mínum,
- þá munu æviár þín mörg verða.
- 11 Ég vísa þér veg spekinnar,
- leiði þig á brautir ráðvendninnar.
- 12 Gangir þú þær, skal leið þín ekki verða þröng,
- og hlaupir þú, skalt þú ekki hrasa.
- 13 Haltu fast í agann, slepptu honum ekki,
- varðveittu hann, því að hann er líf þitt.
- 14 Kom þú eigi á götu óguðlegra
- og gakk eigi á vegi vondra manna.
- 15 Sneið hjá honum, farðu hann ekki,
- snú þú frá honum og farðu fram hjá.
- 16 Því að þeir geta ekki sofið, nema þeir hafi gjört illt,
- og þeim kemur ekki dúr á auga, nema þeir hafi fellt einhvern.
- 17 Því að þeir eta glæpabrauð
- og drekka ofbeldisvín.
- 18 Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi,
- sem verður æ skærari fram á hádegi.
- 19 Vegur óguðlegra er eins og niðamyrkur,
- þeir vita ekki, um hvað þeir hrasa.
- 20 Son minn, gef gaum að ræðu minni,
- hneig eyra þitt að orðum mínum.
- 21 Lát þau eigi víkja frá augum þínum,
- varðveit þau innst í hjarta þínu.
- 22 Því að þau eru líf þeirra, er öðlast þau,
- og lækning fyrir allan líkama þeirra.
- 23 Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru,
- því að þar eru uppsprettur lífsins.
- 24 Haltu fláræði munnsins burt frá þér
- og lát fals varanna vera fjarri þér.
- 25 Augu þín líti beint fram
- og augnalok þín horfi beint fram undan þér.
- 26 Gjör braut fóta þinna slétta,
- og allir vegir þínir séu staðfastir.
- 27 Vík hvorki til hægri né vinstri,
- haltu fæti þínum burt frá illu.
- Varastu lausláta konu
- 5
1 Son minn, gef gaum að speki minni,- hneig eyra þitt að hyggindum mínum,
- 2 til þess að þú megir varðveita mannvit
- og varir þínar geymi þekkingu.
- 3 Því að hunangsseimur drýpur af vörum lauslátrar konu,
- og gómur hennar er hálli en olía.
- 4 En að síðustu er hún beiskari en malurt,
- beitt eins og tvíeggjað sverð.
- 5 Fætur hennar ganga niður til dauðans,
- spor hennar liggja til Heljar.
- 6 Til þess að hún hitti ekki leið lífsins,
- eru brautir hennar á reiki, og hún veit ekki hvert hún fer.
- 7 Heyrið mig því, synir,
- og víkið eigi frá orðum munns míns.
- 8 Legg leið þína langt frá henni
- og kom þú ekki nálægt húsdyrum hennar,
- 9 svo að þú gefir ekki öðrum æskublóma þinn
- og ár þín grimmum manni,
- 10 svo að útlendir menn mettist ekki af eigum þínum
- og aflafé þitt lendi ekki í annarlegu húsi,
- 11 og þú andvarpir að lokum,
- þá er líkami þinn og hold veslast upp,
- 12 og segir: "Hversu hefi ég hatað aga
- og hjarta mitt fyrirlitið umvöndun!
- 13 að ég skyldi ekki hlýða raustu kennara minna
- og hneigja eyra mitt til þeirra, er fræddu mig!
- 14 Við sjálft lá, að ég hefði ratað í mestu ógæfu
- á miðju dómþingi safnaðarins."
- 15 Drekk þú vatn úr vatnsþró þinni
- og rennandi vatn úr brunni þínum.
- 16 Eiga lindir þínar að flóa út á götuna,
- lækir þínir út á torgin?
- 17 Þér einum skulu þær tilheyra
- og engum óviðkomandi með þér.
- 18 Uppspretta þín sé blessuð,
- og gleð þig yfir festarmey æsku þinnar,
- 19 elsku-hindinni, yndis-gemsunni.
- Brjóst hennar gjöri þig ætíð drukkinn,
- og ást hennar fjötri þig ævinlega.
- 20 En hví skyldir þú, son minn, láta léttúðarkonu töfra þig,
- og faðma barm lauslátrar konu?
- 21 Því að vegir sérhvers manns blasa við Drottni,
- og allar brautir hans gjörir hann sléttar.
- 22 Misgjörðir hins óguðlega fanga hann,
- og hann verður veiddur í snörur synda sinna.
- 23 Hann mun deyja vegna skorts á aga
- og kollsteypast vegna sinnar miklu heimsku.
- Varastu að ganga í ábyrgð fyrir annan
- 6
1 Son minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn,- hafir þú gengið til handsala fyrir annan mann,
- 2 hafir þú ánetjað þig með orðum munns þíns,
- látið veiðast með orðum munns þíns,
- 3 þá gjör þetta, son minn, til að losa þig
- - því að þú ert kominn á vald náunga þíns -
- far þú, varpa þér niður og legg að náunga þínum.
- Lát þér eigi koma dúr á auga, né blund á brá.
- 5 Losa þig eins og skógargeit úr höndum hans,
- eins og fugl úr höndum fuglarans.
- Lærðu af maurnum
- 6 Far þú til maursins, letingi!
- skoða háttu hans og verð hygginn.
- 7 Þótt hann hafi engan höfðingja,
- engan yfirboðara eða valdsherra,
- 8 þá aflar hann sér samt vista á sumrin
- og dregur saman fæðu sína um uppskerutímann.
- 9 Hversu lengi ætlar þú, letingi, að hvílast?
- hvenær ætlar þú að rísa af svefni?
- 10 Sofa ögn enn, blunda ögn enn,
- leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast!
- 11 Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi
- og skorturinn eins og vopnaður maður.
- Varmennið
- 12 Varmenni, illmenni er sá,
- sem gengur um með fláttskap í munni,
- 13 sem deplar augunum, gefur merki með fótunum,
- bendir með fingrunum,
- 14 elur fláræði í hjarta sínu,
- upphugsar ávallt illt, kveikir illdeilur.
- 15 Fyrir því mun ógæfa skyndilega yfir hann koma,
- snögglega mun hann sundurmolast og engin lækning fást.
- Það sem Drottinn hatar
- 16 Sex hluti hatar Drottinn
- og sjö eru sálu hans andstyggð:
- 17 drembileg augu, lygin tunga
- og hendur sem úthella saklausu blóði,
- 18 hjarta sem bruggar glæpsamleg ráð,
- fætur sem fráir eru til illverka,
- 19 ljúgvottur sem lygar mælir,
- og sá er kveikir illdeilur meðal bræðra.
- Varastu óhreinlífa konu
- 20 Varðveit þú, son minn, boðorð föður þíns
- og hafna eigi viðvörun móður þinnar.
- 21 Fest þau á hjarta þitt stöðuglega,
- bind þau um háls þinn.
- 22 Þegar þú ert á gangi, þá leiði þau þig,
- þegar þú hvílist, vaki þau yfir þér,
- og þegar þú vaknar, þá ræði þau við þig.
- 23 Því að boðorð er lampi og viðvörun ljós
- og agandi áminningar leið til lífsins,
- 24 með því að þær varðveita þig fyrir vondri konu,
- fyrir hálli tungu hinnar lauslátu.
- 25 Girnst eigi fríðleik hennar í hjarta þínu
- og lát hana eigi töfra þig með augnahárum sínum.
- 26 Því að skækja fæst fyrir einn brauðhleif,
- og hórkona sækist eftir dýru lífi.
- 27 Getur nokkur borið svo eld í barmi sínum,
- að föt hans sviðni ekki?
- 28 Eða getur nokkur gengið á glóðum
- án þess að brenna sig á fótunum?
- 29 Svo fer þeim, sem hefir mök við konu náunga síns,
- enginn sá kemst klakklaust af, sem hana snertir.
- 30 Fyrirlíta menn eigi þjófinn, þó að hann steli
- til þess að seðja hungur sitt?
- 31 Og náist hann, verður hann að borga sjöfalt,
- verður að láta allar eigur húss síns.
- 32 En sá sem drýgir hór með giftri konu, er vitstola,
- sá einn gjörir slíkt, er tortíma vill sjálfum sér.
- 33 Högg og smán mun hann hljóta,
- og skömm hans mun aldrei afmáð verða.
- 34 Því að afbrýði er karlmanns-reiði,
- og hann hlífir ekki á hefndarinnar degi.
- 35 Hann lítur ekki við neinum bótum
- og friðast eigi, þótt þú ryðjir í hann gjöfum.
- 7
1 Son minn, varðveit þú orð mín- og geym þú hjá þér boðorð mín.
- 2 Varðveit þú boðorð mín, og þá munt þú lifa,
- og áminning mína eins og sjáaldur auga þíns.
- 3 Bind þau á fingur þína,
- skrifa þau á spjald hjarta þíns.
- 4 Seg við spekina: "Þú ert systir mín!"
- og kallaðu skynsemina vinkonu,
- 5 svo að þær varðveiti þig fyrir léttúðarkonu,
- fyrir blíðmálugri konu sem annar á.
- 6 Út um gluggann á húsi mínu,
- út um grindurnar skimaði ég
- 7 og sá þar meðal sveinanna
- ungan og vitstola mann.
- 8 Hann gekk á strætinu nálægt horni einu
- og fetaði leiðina að húsi hennar,
- 9 í rökkrinu, að kveldi dags,
- um miðja nótt og í niðdimmu.
- 10 Gekk þá kona í móti honum,
- búin sem portkona og undirförul í hjarta -
- 11 hávær er hún og óhemjuleg,
- fætur hennar tolla aldrei heima,
- 12 hún er ýmist á götunum eða á torgunum,
- og situr um menn hjá hverju horni -,
- 13 hún þrífur í hann og kyssir hann
- og segir við hann, ósvífin í bragði:
- 14 "Ég átti að greiða heillafórn,
- í dag hefi ég goldið heit mitt.
- 15 Fyrir því fór ég út til móts við þig,
- til þess að leita þín, og hefi nú fundið þig.
- 16 Ég hefi búið rúm mitt ábreiðum,
- marglitum ábreiðum úr egypsku líni.
- 17 Myrru, alóe og kanel
- hefi ég stökkt á hvílu mína.
- 18 Kom þú, við skulum drekka okkur ástdrukkin fram á morgun,
- gamna okkur með blíðuhótum.
- 19 Því að maðurinn minn er ekki heima,
- hann er farinn í langferð.
- 20 Peningapyngjuna tók hann með sér,
- hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfylling."
- 21 Hún tældi hann með sínum áköfu fortölum,
- ginnti hann með kjassmælum sínum.
- 22 Hann fer rakleiðis á eftir henni,
- eins og naut gengur fram á blóðvöllinn,
- og eins og hjörtur, sem anar í netið,
- 23 uns örin fer í gegnum lifur hans,
- eins og fuglinn hraðar sér í snöruna,
- og veit ekki, að líf hans er í veði.
- 24 Og nú, þér yngismenn, hlýðið á mig
- og gefið gaum að orðum munns míns.
- 25 Lát eigi hjarta þitt teygjast á vegu hennar,
- villst eigi inn á stigu hennar.
- 26 Því að margir eru þeir, sem hún hefir sært til ólífis,
- og mesti grúi allir þeir, sem hún hefir myrt.
- 27 Hús hennar er helvegur,
- er liggur niður til heimkynna dauðans.
- Spekin tekur til máls
- 8
1 Heyr, spekin kallar- og hyggnin lætur raust sína gjalla.
- 2 Uppi á hæðunum við veginn,
- þar sem göturnar kvíslast - stendur hún.
- 3 Við hliðin, þar sem gengið er út úr borginni,
- þar sem gengið er inn um dyrnar, kallar hún hátt:
- 4 Til yðar, menn, tala ég,
- og raust mín hljómar til mannanna barna.
- 5 Þér óreyndu, lærið hyggindi,
- og þér heimskingjar, lærið skynsemi.
- 6 Hlýðið á, því að ég tala það sem göfuglegt er,
- og varir mínar tjá það sem rétt er.
- 7 Því að sannleika mælir gómur minn
- og guðleysi er viðbjóður vörum mínum.
- 8 Einlæg eru öll orð munns míns,
- í þeim er ekkert fals né fláræði.
- 9 Öll eru þau einföld þeim sem skilning hefir,
- og blátt áfram fyrir þann sem hlotið hefir þekkingu.
- 10 Takið á móti ögun minni fremur en á móti silfri
- og fræðslu fremur en úrvals gulli.
- 11 Því að viska er betri en perlur,
- og engir dýrgripir jafnast á við hana.
- 12 Ég, spekin, er handgengin hyggindunum
- og ræð yfir ráðdeildarsamri þekking.
- 13 Að óttast Drottin er að hata hið illa,
- drambsemi og ofdramb og illa breytni
- og fláráðan munn - það hata ég.
- 14 Mín er ráðspekin og framkvæmdarsemin,
- ég er hyggnin, minn er krafturinn.
- 15 Fyrir mína hjálp ríkja konungarnir
- og úrskurða höfðingjarnir réttvíslega.
- 16 Fyrir mína hjálp stjórna stjórnendurnir
- og tignarmennin - allir valdsmenn á jörðu.
- 17 Ég elska þá sem mig elska,
- og þeir sem leita mín, finna mig.
- 18 Auður og heiður eru hjá mér,
- ævagamlir fjármunir og réttlæti.
- 19 Ávöxtur minn er betri en gull og gimsteinar
- og eftirtekjan eftir mig betri en úrvals silfur.
- 20 Ég geng á götu réttlætisins,
- á stigum réttarins miðjum,
- 21 til þess að gefa þeim sanna auðlegð, er elska mig,
- og fylla forðabúr þeirra.
- 22 Drottinn skóp mig í upphafi vega sinna,
- á undan öðrum verkum sínum, fyrir alda öðli.
- 23 Frá eilífð var ég sett til valda,
- frá upphafi, áður en jörðin var til.
- 24 Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu til,
- þá er engar vatnsmiklar lindir voru til.
- 25 Áður en fjöllunum var hleypt niður,
- á undan hæðunum fæddist ég,
- 26 áður en hann skapaði völl og vengi
- og fyrstu moldarkekki jarðríkis.
- 27 Þegar hann gjörði himininn, þá var ég þar,
- þegar hann setti hvelfinguna yfir hafdjúpið,
- 28 þegar hann festi skýin uppi,
- þegar uppsprettur hafdjúpsins komust í skorður,
- 29 þegar hann setti hafinu takmörk,
- til þess að vötnin færu eigi lengra en hann bauð,
- þegar hann festi undirstöður jarðar.
- 30 Þá stóð ég honum við hlið sem verkstýra,
- og ég var yndi hans dag hvern,
- leikandi mér fyrir augliti hans alla tíma,
- 31 leikandi mér á jarðarkringlu hans,
- og hafði yndi mitt af mannanna börnum.
- 32 Og nú, þér yngismenn, hlýðið mér,
- því að sælir eru þeir, sem varðveita vegu mína.
- 33 Hlýðið á aga, svo að þér verðið vitrir,
- og látið hann eigi sem vind um eyrun þjóta.
- 34 Sæll er sá maður, sem hlýðir mér,
- sem vakir daglega við dyr mínar
- og geymir dyrastafa minna.
- 35 Því að sá sem mig finnur, finnur lífið
- og hlýtur blessun af Drottni.
- 36 En sá sem missir mín, skaðar sjálfan sig.
- Allir þeir, sem hata mig, elska dauðann.
- Spekin og frú Heimska bjóða í veislu
- 9
1 Spekin hefir reist sér hús,- höggvið til sjö stólpa sína.
- 2 Hún hefir slátrað sláturfé sínu, byrlað vín sitt,
- já, hún hefir þegar búið borð sitt.
- 3 Hún hefir sent út þernur sínar, hún kallar
- á háum stöðum í borginni:
- 4 "Hver, sem óreyndur er, komi hingað!"
- Við þann, sem óvitur er, segir hún:
- 5 "Komið, etið mat minn
- og drekkið vínið, sem ég hefi byrlað.
- 6 Látið af heimskunni, þá munuð þér lifa,
- og fetið veg hyggindanna."
- 7 Sá sem áminnir spottara, bakar sér smán,
- og þeim sem ávítar óguðlegan, verður það til vansa.
- 8 Ávíta eigi spottarann, svo að hann hati þig eigi,
- ávíta hinn vitra, og hann mun elska þig.
- 9 Gef hinum vitra, þá verður hann að vitrari,
- fræð hinn réttláta, og hann mun auka lærdóm sinn.
- 10 Ótti Drottins er upphaf viskunnar
- og að þekkja Hinn heilaga eru hyggindi.
- 11 Því að fyrir mitt fulltingi munu dagar þínir verða margir
- og ár lífs þíns aukast.
- 12 Sért þú vitur, þá ert þú vitur þér til góðs,
- en sért þú spottari, þá mun það bitna á þér einum.
- 13 Frú Heimska er óhemja,
- einföld og veit ekkert.
- 14 Hún situr úti fyrir húsdyrum sínum,
- á stól uppi á háu stöðunum í borginni
- 15 til þess að kalla á þá, sem um veginn fara,
- þá er ganga beint áfram leið sína:
- 16 "Hver sem óreyndur er, komi hingað!"
- og við þann sem óvitur er, segir hún:
- 17 "Stolið vatn er sætt,
- og lostætt er launetið brauð."
- 18 Og hann veit ekki, að þar eru hinir framliðnu,
- að þeir sem hún hefir boðið heim, eru í djúpum Heljar.
- Safn spakmæla
- 10
1 Orðskviðir Salómons.
- Vitur sonur gleður föður sinn,
- en heimskur sonur er móður sinni til mæðu.
- 2 Rangfenginn auður stoðar ekki,
- en réttlæti frelsar frá dauða.
- 3 Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hungur,
- en græðgi guðlausra hrindir hann frá sér.
- 4 Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur,
- en auðs aflar iðin hönd.
- 5 Hygginn er sá, er á sumri safnar,
- en skammarlega fer þeim, er um kornsláttinn sefur.
- 6 Blessun kemur yfir höfuð hins réttláta,
- en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.
- 7 Minning hins réttláta verður blessuð,
- en nafn óguðlegra fúnar.
- 8 Sá sem er vitur í hjarta, þýðist boðorðin,
- en sá sem er afglapi í munninum, steypir sér í glötun.
- 9 Sá sem gengur ráðvandlega, gengur óhultur,
- en sá sem gjörir vegu sína hlykkjótta, verður uppvís.
- 10 Sá sem deplar með auganu, veldur skapraun,
- en sá sem finnur að með djörfung, semur frið.
- 11 Munnur hins réttláta er lífslind,
- en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.
- 12 Hatur vekur illdeilur,
- en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti.
- 13 Viska er á vörum hyggins manns,
- en á baki hins óvitra hvín vöndurinn.
- 14 Vitrir menn geyma þekking sína,
- en munnur afglapans er yfirvofandi hrun.
- 15 Auður ríks manns er honum öflugt vígi,
- en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli.
- 16 Afli hins réttláta verður til lífs,
- gróði hins óguðlega til syndar.
- 17 Sá fer lífsins leið, er varðveitir aga,
- en sá villist, er hafnar umvöndun.
- 18 Sá er leynir hatri, er lygari,
- en sá sem ber út óhróður, er heimskingi.
- 19 Málæðinu fylgja yfirsjónir,
- en sá breytir hyggilega, sem hefir taum á tungu sinni.
- 20 Tunga hins réttláta er úrvals silfur,
- vit hins óguðlega er lítils virði.
- 21 Varir hins réttláta fæða marga,
- en afglaparnir deyja úr vitleysu.
- 22 Blessun Drottins, hún auðgar,
- og erfiði mannsins bætir engu við hana.
- 23 Heimskingjanum er ánægja að fremja svívirðing,
- en viskan er hyggnum manni gleði.
- 24 Það sem hinn óguðlegi óttast, kemur yfir hann,
- en réttlátum gefst það, er þeir girnast.
- 25 Þegar vindbylurinn skellur á, er úti um hinn óguðlega,
- en hinn réttláti stendur á eilífum grundvelli.
- 26 Það sem edik er tönnunum og reykur augunum,
- það er letinginn þeim, er hann senda.
- 27 Ótti Drottins lengir lífdagana,
- en æviár óguðlegra verða stytt.
- 28 Eftirvænting réttlátra endar í gleði,
- en von óguðlegra verður að engu.
- 29 Vegur Drottins er athvarf sakleysisins,
- en hrun þeim, er aðhafast illt.
- 30 Hinn réttláti bifast ekki að eilífu,
- en hinir óguðlegu munu ekki byggja landið.
- 31 Munnur hins réttláta framleiðir visku,
- en fláráð tunga verður upprætt.
- 32 Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er,
- en munnur óguðlegra er eintóm flærð.
- 11
1 Svikavog er Drottni andstyggð,- en full vog yndi hans.
- 2 Komi hroki, kemur smán,
- en hjá lítillátum er viska.
- 3 Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá,
- en undirferli svikulla tortímir þeim.
- 4 Auðæfi stoða ekki á degi reiðinnar,
- en réttlæti frelsar frá dauða.
- 5 Réttlæti hins ráðvanda gjörir veg hans sléttan,
- en hinn óguðlegi fellur um guðleysi sitt.
- 6 Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá,
- en hinir svikulu ánetjast í eigin græðgi.
- 7 Þegar óguðlegur maður deyr, verður von hans að engu,
- og eftirvænting glæpamannanna er að engu orðin.
- 8 Hinn réttláti frelsast úr nauðum,
- og hinn óguðlegi kemur í hans stað.
- 9 Með munninum steypir hinn guðlausi náunga sínum í glötun,
- en hinir réttlátu frelsast fyrir þekkingu.
- 10 Borgin fagnar yfir gæfu réttlátra,
- og þegar óguðlegir farast, gjalla gleðiópin.
- 11 Borgin hefst fyrir blessun hreinskilinna,
- en fyrir munn óguðlegra steypist hún.
- 12 Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu,
- en hygginn maður þegir.
- 13 Sá er gengur um sem rógberi, lýstur upp leyndarmálum,
- en sá sem er staðfastur í lund, leynir sökinni.
- 14 Þar sem engin stjórn er, þar fellur þjóðin,
- en þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.
- 15 Hrapallega fer fyrir þeim, er gengur í ábyrgð fyrir annan mann,
- en sá sem hatar handsöl, er óhultur.
- 16 Yndisleg kona hlýtur sæmd,
- og hinir sterku hljóta auðæfi.
- 17 Kærleiksríkur maður gjörir sálu sinni gott,
- en hinn grimmi kvelur sitt eigið hold.
- 18 Hinn óguðlegi aflar sér svikuls ávinnings,
- en sá er réttlæti sáir, sannra launa.
- 19 Iðki einhver réttlæti, þá leiðir það til lífs,
- en ef hann eltir hið illa, leiðir það hann til dauða.
- 20 Andstyggð fyrir Drottni eru þeir, sem hafa rangsnúið hjarta,
- en yndi hans þeir, er breyta ráðvandlega.
- 21 Hér er höndin upp á það: Hinn vondi sleppur ekki óhegndur!
- en niðjar réttlátra komast undan.
- 22 Eins og gullhringur í svínstrýni,
- svo er fríð kona, sem enga siðprýði kann.
- 23 Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs,
- en vonir óguðlegra leiða yfir sig reiðidóm.
- 24 Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira,
- aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari.
- 25 Velgjörðasöm sál mettast ríkulega,
- og sá sem gefur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta.
- 26 Fólkið formælir þeim, sem heldur í kornið,
- en blessun kemur yfir höfuð þess, er selur það.
- 27 Sá sem leitar góðs, stundar það, sem velþóknanlegt er,
- en sá sem sækist eftir illu, verður fyrir því.
- 28 Sá sem treystir á auð sinn, hann fellur,
- en hinir réttlátu munu grænka eins og laufið.
- 29 Sá sem kemur ólagi á heimilishag sinn, erfir vind,
- og afglapinn verður þjónn hins vitra.
- 30 Ávöxtur hins réttláta er lífstré,
- og hinn vitri hyllir að sér hjörtun.
- 31 Sjá, hinn réttláti fær endurgjald hér á jörðu,
- hvað þá hinn óguðlegi og syndarinn?
- 12
1 Sá sem elskar aga, elskar þekking,- en sá sem hatar umvöndun, er heimskur.
- 2 Hinn góði hlýtur velþóknun af Drottni,
- en hrekkvísan mann fyrirdæmir hann.
- 3 Enginn maður nær fótfestu með óguðleika,
- en rót hinna réttlátu mun eigi bifast.
- 4 Væn kona er kóróna manns síns,
- en vond kona er sem rotnun í beinum hans.
- 5 Hugsanir réttlátra stefna að rétti,
- en ráðagjörðir óguðlegra að svikum.
- 6 Orð óguðlegra brugga banaráð,
- en munnur hreinskilinna frelsar þá.
- 7 Óguðlegir kollsteypast og eru eigi framar til,
- en hús réttlátra stendur.
- 8 Manninum verður hrósað eftir vitsmunum hans,
- en sá sem er rangsnúinn í hjarta, verður fyrirlitinn.
- 9 Betra er að láta lítið yfir sér og hafa þjón
- en að berast mikið á og hafa ekki ofan í sig.
- 10 Hinn réttláti er nærgætinn um þörf skepna sinna,
- en hjarta óguðlegra er hart.
- 11 Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði,
- en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, er óvitur.
- 12 Hinn óguðlegi ágirnist feng hinna vondu,
- en rót réttlátra er varanleg.
- 13 Yfirsjón varanna er ill snara,
- en hinn réttláti bjargast úr nauðum.
- 14 Af ávexti munnsins mettast maðurinn gæðum,
- og það sem hendur hans hafa öðrum gjört, kemur aftur yfir hann.
- 15 Afglapanum finnst sinn vegur réttur,
- en vitur maður hlýðir á ráð.
- 16 Gremja afglapans kemur þegar í ljós,
- en kænn maður dylur smán sína.
- 17 Sá sem segir sannleikann hispurslaust, mælir fram það sem rétt er,
- en falsvotturinn svik.
- 18 Þvaður sumra manna er sem spjótsstungur,
- en tunga hinna vitru græðir.
- 19 Sannmálar varir munu ávallt standast,
- en lygin tunga aðeins stutta stund.
- 20 Yfir svikum búa þeir, er illt brugga,
- en gleði valda þeir, er ráða til friðar.
- 21 Réttlátum manni ber aldrei böl að hendi,
- en óhamingja hleðst á óguðlega.
- 22 Lygavarir eru Drottni andstyggð,
- en þeir sem sannleik iðka, eru yndi hans.
- 23 Kænn maður fer dult með þekking sína,
- en hjarta heimskingjanna fer hátt með flónsku sína.
- 24 Hönd hinna iðnu mun drottna,
- en hangandi höndin verður vinnuskyld.
- 25 Hugsýki beygir manninn,
- en vingjarnlegt orð gleður hann.
- 26 Hinum réttláta vegnar betur en öðrum,
- en vegur óguðlegra leiðir þá í villu.
- 27 Letinginn nær ekki villibráðinni,
- en iðnin er manninum dýrmætur auður.
- 28 Á vegi réttlætisins er líf,
- en glæpaleiðin liggur út í dauðann.
- 13
1 Vitur sonur hlýðir umvöndun föður síns,- en spottarinn sinnir engum átölum.
- 2 Maðurinn nýtur góðs af ávexti munnsins,
- en svikarana þyrstir í ofbeldi.
- 3 Sá sem gætir munns síns, varðveitir líf sitt,
- en glötun er búin þeim, er ginið glennir.
- 4 Sál letingjans girnist og fær ekki,
- en sál hinna iðnu mettast ríkulega.
- 5 Réttlátur maður hatar fals,
- en hinn óguðlegi fremur skömm og svívirðu.
- 6 Réttlætið verndar grandvara breytni,
- en guðleysið steypir syndaranum.
- 7 Einn þykist ríkur, en á þó ekkert,
- annar læst vera fátækur, en á þó mikinn auð.
- 8 Auðæfi mannsins eru lausnargjald fyrir líf hans,
- en hinn fátæki hlýðir ekki á neinar ávítur.
- 9 Ljós réttlátra logar skært,
- en á lampa óguðlegra slokknar.
- 10 Með hroka vekja menn aðeins þrætur,
- en hjá ráðþægnum mönnum er viska.
- 11 Skjótfenginn auður minnkar,
- en sá sem safnar smátt og smátt, verður ríkur.
- 12 Langdregin eftirvænting gjörir hjartað sjúkt,
- en uppfyllt ósk er lífstré.
- 13 Sá sem fyrirlítur áminningarorð, býr sér glötun,
- en sá sem óttast boðorðið, hlýtur umbun.
- 14 Kenning hins vitra er lífslind
- til þess að forðast snöru dauðans.
- 15 Góðir vitsmunir veita hylli,
- en vegur svikaranna leiðir í glötun.
- 16 Kænn maður gjörir allt með skynsemd,
- en heimskinginn breiðir út vitleysu.
- 17 Óguðlegur sendiboði steypir í ógæfu,
- en trúr sendimaður er meinabót.
- 18 Fátækt og smán hlýtur sá, er lætur áminning sem vind um eyrun þjóta,
- en sá sem tekur umvöndun, verður heiðraður.
- 19 Uppfyllt ósk er sálunni sæt,
- en að forðast illt er heimskingjunum andstyggð.
- 20 Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur,
- en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja.
- 21 Óhamingjan eltir syndarana,
- en gæfan nær hinum réttlátu.
- 22 Góður maður lætur eftir sig arf handa barnabörnunum,
- en eigur syndarans eru geymdar hinum réttláta.
- 23 Nýbrotið land fátæklinganna gefur mikla fæðu,
- en mörgum er burtu kippt fyrir ranglæti sitt.
- 24 Sá sem sparar vöndinn, hatar son sinn,
- en sá sem elskar hann, agar hann snemma.
- 25 Hinn réttláti etur nægju sína,
- en kviður óguðlegra líður skort.
- 14
1 Viska kvennanna reisir húsið,- en fíflskan rífur það niður með höndum sínum.
- 2 Sá sem framgengur í hreinskilni sinni, óttast Drottin,
- en sá sem fer krókaleiðir, fyrirlítur hann.
- 3 Í munni afglapans er vöndur á hroka hans,
- en varir hinna vitru varðveita þá.
- 4 Þar sem engin naut eru, þar er jatan tóm,
- en fyrir kraft uxans fæst mikill ágóði.
- 5 Sannorður vottur lýgur ekki,
- en falsvottur fer með lygar.
- 6 Spottarinn leitar visku, en finnur ekki,
- en hyggnum manni er þekkingin auðfengin.
- 7 Gakk þú burt frá heimskum manni,
- og þú hefir ekki kynnst þekkingar-vörum.
- 8 Viska hins kæna er í því fólgin, að hann skilur veg sinn,
- en fíflska heimskingjanna er svik.
- 9 Afglaparnir gjöra gys að sektarfórnum,
- en meðal hreinskilinna er velþóknun.
- 10 Hjartað eitt þekkir kvöl sína,
- og jafnvel í gleði þess getur enginn annar blandað sér.
- 11 Hús óguðlegra mun eyðileggjast,
- en tjald hreinskilinna mun blómgast.
- 12 Margur vegurinn virðist greiðfær,
- en endar þó á helslóðum.
- 13 Jafnvel þótt hlegið sé, kennir hjartað til,
- og endir gleðinnar er tregi.
- 14 Rangsnúið hjarta mettast af vegum sínum
- svo og góður maður af verkum sínum.
- 15 Einfaldur maður trúir öllu,
- en kænn maður athugar fótmál sín.
- 16 Vitur maður óttast hið illa og forðast það,
- en heimskinginn er framhleypinn og ugglaus.
- 17 Uppstökkur maður fremur fíflsku,
- en hrekkvís maður verður hataður.
- 18 Einfeldningarnir erfa fíflsku,
- en vitrir menn krýnast þekkingu.
- 19 Hinir vondu verða að lúta hinum góðu,
- og hinir óguðlegu að standa við dyr réttlátra.
- 20 Fátæklingurinn verður hvimleiður jafnvel vini sínum,
- en ríkismanninn elska margir.
- 21 Sá sem fyrirlítur vin sinn, drýgir synd,
- en sæll er sá, sem miskunnar sig yfir hina voluðu.
- 22 Vissulega villast þeir, er ástunda illt,
- en ást og trúfesti ávinna þeir sér, er gott stunda.
- 23 Af öllu striti fæst ágóði,
- en munnfleiprið eitt leiðir aðeins til skorts.
- 24 Vitrum mönnum er auður þeirra kóróna,
- en fíflska heimskingjanna er og verður fíflska.
- 25 Sannorður vottur frelsar líf,
- en sá sem fer með lygar, er svikari.
- 26 Í ótta Drottins er öruggt traust,
- og synir slíks manns munu athvarf eiga.
- 27 Ótti Drottins er lífslind
- til þess að forðast snörur dauðans.
- 28 Fólksmergðin er prýði konungsins,
- en mannaskorturinn steypir höfðingjanum.
- 29 Sá sem er seinn til reiði, er ríkur að skynsemd,
- en hinn bráðlyndi sýnir mikla fíflsku.
- 30 Rósamt hjarta er líf líkamans,
- en ástríða er eitur í beinum.
- 31 Sá sem kúgar snauðan mann, óvirðir þann er skóp hann,
- en sá heiðrar hann, er miskunnar sig yfir fátækan.
- 32 Hinn óguðlegi fellur á illsku sinni,
- en hinum réttláta er ráðvendnin athvarf.
- 33 Í hjarta hyggins manns heldur viskan kyrru fyrir,
- en á meðal heimskingja gerir hún vart við sig.
- 34 Réttlætið hefur upp lýðinn,
- en syndin er þjóðanna skömm.
- 35 Vitur þjónn hlýtur hylli konungsins,
- en sá hefir reiði hans, sem skammarlega breytir.
- 15
1 Mjúklegt andsvar stöðvar bræði,- en meiðandi orð vekur reiði.
- 2 Af tungu hinna vitru drýpur þekking,
- en munnur heimskingjanna eys úr sér vitleysu.
- 3 Augu Drottins eru alls staðar,
- vakandi yfir vondum og góðum.
- 4 Hógværð tungunnar er lífstré,
- en fals hennar veldur hugarkvöl.
- 5 Afglapinn smáir aga föður síns,
- en sá sem tekur umvöndun, verður hygginn.
- 6 Í húsi hins réttláta er mikill auður,
- en glundroði er í gróðafé hins óguðlega.
- 7 Varir hinna vitru dreifa út þekkingu,
- en hjarta heimskingjanna er rangsnúið.
- 8 Fórn óguðlegra er Drottni andstyggð,
- en bæn hreinskilinna er honum þóknanleg.
- 9 Vegur hins óguðlega er Drottni andstyggilegur,
- en þann sem stundar réttlæti, elskar hann.
- 10 Slæm hirting bíður þess, sem yfirgefur rétta leið,
- sá sem hatar umvöndun, hlýtur að deyja.
- 11 Dánarheimur og undirdjúpin eru opin fyrir Drottni,
- hversu miklu fremur hjörtu mannanna barna!
- 12 Spottaranum er ekki vel við, að vandað sé um við hann,
- til viturra manna fer hann ekki.
- 13 Glatt hjarta gjörir andlitið hýrlegt,
- en sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur.
- 14 Hjarta hins vitra leitar að þekking,
- en munnur heimskingjanna gæðir sér á fíflsku.
- 15 Hinn volaði sér aldrei glaðan dag,
- en sá sem vel liggur á, er sífellt í veislu.
- 16 Betra er lítið í ótta Drottins
- en mikill fjársjóður með áhyggjum.
- 17 Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika
- en alinn uxi með hatri.
- 18 Bráðlyndur maður vekur deilur,
- en sá sem seinn er til reiði, stillir þrætu.
- 19 Vegur letingjans er eins og þyrnigerði,
- en gata hreinskilinna er brautarvegur.
- 20 Vitur sonur gleður föður sinn,
- en heimskur maður fyrirlítur móður sína.
- 21 Óvitrum manni er fíflskan gleði,
- en skynsamur maður gengur beint áfram.
- 22 Áformin verða að engu, þar sem engin er ráðagerðin,
- en ef margir leggja á ráðin, fá þau framgang.
- 23 Gleði hlýtur maðurinn af svari munns síns,
- og hversu fagurt er orð í tíma talað!
- 24 Lífsins vegur liggur upp á við fyrir hinn hyggna,
- til þess að hann lendi ekki niður í Helju.
- 25 Drottinn rífur niður hús dramblátra,
- en setur föst landamerki ekkjunnar.
- 26 Ill áform eru Drottni andstyggð,
- en hrein eru vingjarnleg orð.
- 27 Sá kemur ólagi á heimilishag sinn, sem fíkinn er í rangfenginn gróða,
- en sá sem hatar mútugjafir, mun lifa.
- 28 Hjarta hins réttláta íhugar, hverju svara skuli,
- en munnur óguðlegra eys úr sér illsku.
- 29 Drottinn er fjarlægur óguðlegum,
- en bæn réttlátra heyrir hann.
- 30 Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað,
- góðar fréttir feita beinin.
- 31 Eyra sem hlýðir á holla umvöndun,
- mun búa meðal hinna vitru.
- 32 Sá sem aga hafnar, fyrirlítur sjálfan sig,
- en sá sem hlýðir á umvöndun, aflar sér hygginda.
- 33 Ótti Drottins er ögun til visku,
- og auðmýkt er undanfari virðingar.
- 16
1 Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi,- en svar tungunnar kemur frá Drottni.
- 2 Manninum þykja allir sínir vegir hreinir,
- en Drottinn prófar hugarþelið.
- 3 Fel þú Drottni verk þín,
- þá mun áformum þínum framgengt verða.
- 4 Allt hefir Drottinn skapað til síns ákveðna marks,
- svo og guðleysingjann til óheilladagsins.
- 5 Sérhver hrokafullur maður er Drottni andstyggð,
- hér er höndin upp á það: hann sleppur ekki óhegndur!
- 6 Með elsku og trúfesti er friðþægt fyrir misgjörð,
- og fyrir ótta Drottins forðast menn hið illa.
- 7 Þegar Drottinn hefir þóknun á breytni einhvers manns,
- þá sættir hann og óvini hans við hann.
- 8 Betra er lítið með réttu
- en miklar tekjur með röngu.
- 9 Hjarta mannsins upphugsar veg hans,
- en Drottinn stýrir gangi hans.
- 10 Goðsvar er á vörum konungsins,
- í dómi mun munni hans ekki skeika.
- 11 Rétt vog og reisla koma frá Drottni,
- lóðin á vogarskálunum eru hans verk.
- 12 Að fremja ranglæti er konungum andstyggð,
- því að hásætið staðfestist fyrir réttlæti.
- 13 Réttlátar varir eru yndi konunga,
- og þeir elska þann, er talar hreinskilni.
- 14 Konungsreiði er sem sendiboði dauðans,
- en vitur maður sefar hana.
- 15 Í mildilegu augnaráði konungs er líf,
- og hylli hans er sem vorregns-ský.
- 16 Hversu miklu betra er að afla sér visku en gulls
- og ákjósanlegra að afla sér hygginda en silfurs.
- 17 Braut hreinskilinna er að forðast illt,
- að varðveita sálu sína er að gæta breytni sinnar.
- 18 Drambsemi er undanfari tortímingar,
- og oflæti veit á fall.
- 19 Betra er að vera lítillátur með auðmjúkum
- en að skipta herfangi með dramblátum.
- 20 Sá sem gefur gætur að orðinu, hreppir hamingju,
- og sæll er sá, sem treystir Drottni.
- 21 Sá sem er vitur í hjarta, verður hygginn kallaður,
- og sætleiki varanna eykur fræðslu.
- 22 Lífslind er hyggnin þeim, sem hana á,
- en ögun afglapanna er þeirra eigin flónska.
- 23 Hjarta spekingsins gjörir munn hans hygginn
- og eykur fræðsluna á vörum hans.
- 24 Vingjarnleg orð eru hunangsseimur,
- sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin.
- 25 Margur vegurinn virðist greiðfær,
- en endar þó á helslóðum.
- 26 Hungur erfiðismannsins erfiðar með honum,
- því að munnur hans rekur á eftir honum.
- 27 Varmennið grefur óheillagröf,
- og á vörum hans er sem brennandi eldur.
- 28 Vélráður maður kveikir illdeilur,
- og rógberinn veldur vinaskilnaði.
- 29 Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn
- og leiðir hann á vondan veg.
- 30 Sá sem lokar augunum, upphugsar vélræði,
- sá sem kreistir saman varirnar, er albúinn til ills.
- 31 Gráar hærur eru heiðurskóróna,
- á vegi réttlætis öðlast menn hana.
- 32 Sá sem seinn er til reiði, er betri en kappi,
- og sá sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá sem vinnur borgir.
- 33 Í skikkjufellingum eru teningarnir hristir,
- en Drottinn ræður, hvað upp kemur.
- 17
1 Betri er þurr brauðbiti með ró- en fullt hús af fórnarkjöti með deilum.
- 2 Hygginn þræll verður drottnari yfir spilltum syni,
- og hann tekur erfðahlut með bræðrunum.
- 3 Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið,
- en Drottinn prófar hjörtun.
- 4 Illmennið gefur gaum að fláræðis-vörum,
- lygin hlýðir á glæpa-tungu.
- 5 Sá sem gjörir gys að fátækum, óvirðir þann er skóp hann,
- og sá sem gleðst yfir ógæfu, sleppur ekki óhegndur.
- 6 Barnabörnin eru kóróna öldunganna,
- og feðurnir eru heiður barnanna.
- 7 Ekki hæfa heimskum manni stóryrði,
- hve miklu síður göfgum manni lygavarir.
- 8 Mútan er gimsteinn í augum þess er hana fær,
- hvert sem maður snýr sér með hana, kemur hann sínu fram.
- 9 Sá sem breiðir yfir bresti, eflir kærleika,
- en sá sem ýfir upp sök, veldur vinaskilnaði.
- 10 Ávítur fá meira á hygginn mann
- en hundrað högg á heimskingja.
- 11 Uppreisnarmaðurinn hyggur á illt eitt,
- en grimmur sendiboði mun sendur verða móti honum.
- 12 Betra er fyrir mann að mæta birnu, sem rænd er húnum sínum,
- heldur en heimskingja í flónsku hans.
- 13 Sá sem launar gott með illu,
- frá hans húsi víkur ógæfan eigi.
- 14 Þegar deila byrjar, er sem tekin sé úr stífla,
- lát því af þrætunni, áður en rifrildi hefst.
- 15 Sá sem sekan sýknar, og sá sem saklausan sakfellir,
- þeir eru báðir Drottni andstyggð.
- 16 Hvað stoða peningar í hendi heimskingjans
- til þess að kaupa speki, þar sem vitið er ekkert?
- 17 Vinur elskar ætíð
- og í nauðum er hann sem bróðir.
- 18 Óvitur maður er sá, er til handsala gengur,
- sá sem gengur í ábyrgð fyrir náunga sinn.
- 19 Sá elskar yfirsjón, sem þrætu elskar,
- sá sem háar gjörir dyr sínar, sækist eftir hruni.
- 20 Rangsnúið hjarta öðlast enga gæfu,
- og sá sem hefir fláráða tungu, hrapar í ógæfu.
- 21 Sá sem getur af sér heimskingja, honum verður það til mæðu,
- og faðir glópsins fagnar ekki.
- 22 Glatt hjarta veitir góða heilsubót,
- en dapurt geð skrælir beinin.
- 23 Hinn óguðlegi þiggur mútur á laun
- til þess að beygja leiðir réttvísinnar.
- 24 Hygginn maður hefir viskuna fyrir framan sig,
- en augu heimskingjans eru úti á heimsenda.
- 25 Heimskur sonur er föður sínum til sorgar
- og þeirri til angurs, er ól hann.
- 26 Það eitt að sekta saklausan er ekki gott,
- en að berja tignarmenni tekur þó út yfir.
- 27 Fámálugur maður er hygginn,
- og geðrór maður er skynsamur.
- 28 Afglapinn getur jafnvel álitist vitur, ef hann þegir,
- hygginn, ef hann lokar vörunum.
- 18
1 Sérlyndur maður fer að sínum munum,- hann illskast við öllu, sem hyggilegt er.
- 2 Heimskinginn hefir engar mætur á hyggindum,
- heldur á því að gjöra kunnar hugsanir sínar.
- 3 Þar sem hinn óguðlegi kemur, þar kemur og fyrirlitning,
- og með smáninni kemur skömm.
- 4 Djúp vötn eru orð af manns munni,
- lind viskunnar er sem rennandi lækur.
- 5 Það er ekki rétt að draga taum hins óguðlega,
- að halla rétti hins saklausa í dómi.
- 6 Varir heimskingjans valda deilum,
- og munnur hans kallar á högg.
- 7 Munnur heimskingjans verður honum að tjóni,
- og varir hans eru snara fyrir líf hans.
- 8 Orð rógberans eru eins og sælgæti,
- og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.
- 9 Sá sem tómlátur er í verki sínu,
- er skilgetinn bróðir eyðsluseggsins.
- 10 Nafn Drottins er sterkur turn,
- þangað hleypur hinn réttláti og er þar óhultur.
- 11 Auður ríks manns er honum öflugt vígi
- og ókleifur múrveggur í sjálfs hans ímyndun.
- 12 Ofmetnaður hjartans er undanfari falls,
- en auðmýkt er undanfari virðingar.
- 13 Svari einhver áður en hann heyrir,
- þá er honum það flónska og skömm.
- 14 Hugrekki mannsins heldur honum uppi í sjúkdómi hans,
- en dapurt geð, hver fær borið það?
- 15 Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar,
- og eyra hinna vitru leitar þekkingar.
- 16 Gjöf sem maður gefur, rýmir til fyrir honum
- og leiðir hann fram fyrir stórmenni.
- 17 Hinn fyrri sýnist hafa á réttu að standa í þrætumáli sínu,
- en síðan kemur mótpartur hans og rannsakar röksemdir hans.
- 18 Hlutkestið gjörir enda á deilum
- og sker úr milli sterkra.
- 19 Erfiðara er að ávinna svikinn bróður en að vinna rammbyggða borg,
- og deilur slíkra manna eru sem slagbrandar fyrir hallardyrum.
- 20 Kviður mannsins mettast af ávexti munns hans,
- af gróðri varanna mettast hann.
- 21 Dauði og líf eru á tungunnar valdi,
- og sá sem hefir taum á henni, mun eta ávöxt hennar.
- 22 Sá sem eignast konu, eignast gersemi,
- og hlýtur náðargjöf af Drottni.
- 23 Hinn fátæki mælir bljúgum bænarorðum,
- en hinn ríki svarar með hörku.
- 24 Að vera allra vinur er til tjóns,
- en til er ástvinur, sem er tryggari en bróðir.
- 19
1 Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni,- heldur en lævís lygari og heimskur að auki.
- 2 Kapp er best með forsjá,
- og sá sem hraðar sér, misstígur sig.
- 3 Flónska mannsins steypir fyrirtækjum hans,
- en hjarta hans illskast við Drottin.
- 4 Auður fjölgar vinum,
- en fátækur maður verður vinum horfinn.
- 5 Falsvottur sleppur ekki óhegndur,
- og sá sem fer með lygar, kemst ekki undan.
- 6 Margir reyna að koma sér í mjúkinn hjá tignarmanninum,
- og allir eru vinir þess, sem gjafir gefur.
- 7 Allir bræður hins snauða hata hann,
- hversu miklu fremur firrast þá vinir hans hann.
- 8 Sá sem aflar sér hygginda, elskar líf sitt,
- sá sem varðveitir skynsemi, mun gæfu hljóta.
- 9 Falsvottur sleppur ekki óhegndur,
- og sá sem fer með lygar, tortímist.
- 10 Sællífi hæfir eigi heimskum manni,
- hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum.
- 11 Hyggni mannsins gjörir hann seinan til reiði,
- og það er honum til frægðar að ganga fram hjá mótgjörðum.
- 12 Konungsreiði er eins og ljónsöskur,
- en hylli hans sem dögg á grasi.
- 13 Heimskur sonur er föður sínum sönn óhamingja,
- og konuþras er sífelldur þakleki.
- 14 Hús og auður er arfur frá feðrunum,
- en skynsöm kona er gjöf frá Drottni.
- 15 Letin svæfir þungum svefni,
- og iðjulaus maður mun hungur þola.
- 16 Sá sem varðveitir boðorðið, varðveitir líf sitt,
- en sá deyr, sem ekki hefir gát á vegum sínum.
- 17 Sá lánar Drottni, er líknar fátækum,
- og hann mun launa honum góðverk hans.
- 18 Aga þú son þinn, því að enn er von,
- en farðu eigi svo langt, að þú deyðir hann.
- 19 Sá sem illa reiðist, verður að greiða sekt,
- því að ætlir þú að bjarga, gjörir þú illt verra.
- 20 Hlýð þú ráðum og tak umvöndun,
- til þess að þú verðir vitur eftirleiðis.
- 21 Mörg eru áformin í mannshjartanu,
- en ráðsályktun Drottins stendur.
- 22 Unun mannsins er kærleiksverk hans,
- og betri er fátækur maður en lygari.
- 23 Ótti Drottins leiðir til lífs,
- þá hvílist maðurinn mettur, verður ekki fyrir neinni ógæfu.
- 24 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina,
- en ekki nennir hann að bera hana aftur upp að munninum.
- 25 Sláir þú spottarann, verður hinn einfaldi hygginn,
- og sé vandað um við skynsaman mann, lærir hann hyggindi.
- 26 Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína,
- slíkur sonur fremur smán og svívirðing.
- 27 Hættu, son minn, að hlýða á umvöndun,
- ef það er til þess eins, að þú brjótir á móti skynsamlegum orðum.
- 28 Samviskulaus vottur gjörir gys að réttinum,
- og munnur óguðlegra gleypir rangindi.
- 29 Refsidómar eru búnir spotturunum
- og högg baki heimskingjanna.
- 20
1 Vínið er spottari, sterkur drykkur glaumsamur,- og hver sá, er drukkinn reikar, er óvitur.
- 2 Konungsreiði er eins og ljónsöskur,
- sá sem egnir hann á móti sér, fyrirgjörir lífi sínu.
- 3 Það er manni sómi að halda sér frá þrætu,
- en hver afglapinn ygglir sig.
- 4 Letinginn plægir ekki á haustin,
- fyrir því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt.
- 5 Ráðin í hjarta mannsins eru sem djúp vötn,
- og hygginn maður eys þar af.
- 6 Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir,
- en tryggan vin, hver finnur hann?
- 7 Réttlátur maður gengur fram í ráðvendni sinni,
- sæl eru því börn hans eftir hann.
- 8 Þegar konungur situr á dómstóli,
- þá skilur hann allt illt úr með augnaráði sínu.
- 9 Hver getur sagt: "Ég hefi haldið hjarta mínu hreinu,
- ég er hreinn af synd?"
- 10 Tvenns konar vog og tvenns konar mál,
- það er hvort tveggja Drottni andstyggð.
- 11 Sveinninn þekkist þegar á verkum sínum,
- hvort athafnir hans eru hreinar og einlægar.
- 12 Eyrað sem heyrir, og augað sem sér,
- hvort tveggja hefir Drottinn skapað.
- 13 Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur,
- opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði.
- 14 "Slæmt! Slæmt!" segir kaupandinn,
- en þegar hann gengur burt, hælist hann um.
- 15 Til er gull og gnægð af perlum,
- en hið dýrmætasta þing eru vitrar varir.
- 16 Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan,
- tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlendinga.
- 17 Sætt er svikabrauðið,
- en eftir á fyllist munnurinn möl.
- 18 Vel ráðin áform fá framgang,
- haf því holl ráð, er þú heyr stríð.
- 19 Sá sem ljóstar upp leyndarmálum, gengur um sem rógberi,
- haf því engin mök við málugan mann.
- 20 Sá sem formælir föður og móður,
- á hans lampa slokknar í niðamyrkri.
- 21 Arfur, sem í upphafi var skjótfenginn,
- blessast eigi að lokum.
- 22 Seg þú ekki: "Ég vil endurgjalda illt!"
- Bíð þú Drottins, og hann mun hjálpa þér.
- 23 Tvenns konar vog er Drottni andstyggð,
- og svikavog er ekki góð.
- 24 Spor mannsins eru ákveðin af Drottni,
- en maðurinn - hvernig fær hann skynjað veg sinn?
- 25 Það er manninum snara að hrópa í fljótfærni: "Helgað!"
- og hyggja fyrst að, þegar heitin eru gjörð.
- 26 Vitur konungur skilur úr hina óguðlegu
- og lætur síðan hjólið yfir þá ganga.
- 27 Andi mannsins er lampi frá Drottni,
- sem rannsakar hvern afkima hjartans.
- 28 Kærleiki og trúfesti varðveita konunginn,
- og hann styður hásæti sitt með kærleika.
- 29 Krafturinn er ágæti ungra manna,
- en hærurnar prýði öldunganna.
- 30 Blóðugar skrámur hreinsa illmennið
- og högg, sem duglega svíða.
- 21
1 Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins,- hann beygir það til hvers, er honum þóknast.
- 2 Manninum þykja allir sínir vegir réttir,
- en Drottinn vegur hjörtun.
- 3 Að iðka réttlæti og rétt
- er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.
- 4 Drembileg augu og hrokafullt hjarta
- eru lampi óguðlegra, - allt er það synd.
- 5 Fyrirætlanir iðjumannsins reynast fésamar vel,
- en öll flasfærni lendir í fjárskorti.
- 6 Fjársjóðir, sem aflað er með lygatungu,
- eru sem þjótandi vindblær, snörur dauðans.
- 7 Ofríki hinna óguðlegu dregur þá á eftir sér,
- því að þeir færast undan að gjöra það, sem rétt er.
- 8 Boginn er vegur þess manns, sem synd er hlaðinn,
- en verk hins hreina eru ráðvandleg.
- 9 Betri er vist í horni á húsþaki
- en sambúð við þrasgjarna konu.
- 10 Sál hins óguðlega girnist illt,
- náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.
- 11 Sé spottaranum refsað, verður hinn einfaldi hygginn,
- og sé vitur maður fræddur, lærir hann hyggindi.
- 12 Gætur gefur réttlátur að húsi hins óguðlega,
- steypir óguðlegum í ógæfu.
- 13 Sá sem byrgir eyrun fyrir kveini hins fátæka,
- hann mun sjálfur kalla og eigi fá bænheyrslu.
- 14 Gjöf á laun sefar reiði
- og múta í barmi ákafa heift.
- 15 Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er,
- en illgjörðamönnum er það skelfing.
- 16 Sá maður, sem villist af vegi skynseminnar,
- mun brátt hvílast í söfnuði framliðinna.
- 17 Öreigi verður sá, er sólginn er í skemmtanir,
- sá sem sólginn er í vín og olíu, verður ekki ríkur.
- 18 Hinn óguðlegi er lausnargjald fyrir hinn réttláta,
- og svikarinn kemur í stað hinna hreinskilnu.
- 19 Betra er að búa í eyðimerkur-landi
- en með þrasgjarnri og geðillri konu.
- 20 Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra,
- en heimskur maður sólundar því.
- 21 Sá sem ástundar réttlæti og kærleika,
- hann öðlast líf, réttlæti og heiður.
- 22 Vitur maður vinnur borg kappanna
- og rífur niður vígið, sem hún treysti á.
- 23 Sá sem varðveitir munn sinn og tungu,
- hann varðveitir sálu sína frá nauðum.
- 24 Sá sem er hrokafullur, dramblátur, hann heitir spottari,
- sá sem gjörir allt af taumlausum hroka.
- 25 Óskir letingjans drepa hann,
- því að hendur hans vilja ekki vinna.
- 26 Ávallt er letinginn að óska sér,
- en hinn réttláti gefur og er ekki naumur.
- 27 Sláturfórn óguðlegra er Drottni andstyggð,
- hvað þá, sé hún framborin fyrir óhæfuverk.
- 28 Falsvottur mun tortímast,
- en maður, sem heyrt hefir, má ávallt tala.
- 29 Óguðlegur maður setur upp öruggan svip,
- en hinn hreinskilni gjörir veg sinn öruggan.
- 30 Engin viska er til og engin hyggni,
- né heldur ráð gegn Drottni.
- 31 Hesturinn er hafður viðbúinn til orustudagsins,
- en sigurinn er í hendi Drottins.
- 22
1 Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður,- vinsæld er betri en silfur og gull.
- 2 Ríkur og fátækur hittast,
- Drottinn skóp þá alla saman.
- 3 Vitur maður sér ógæfuna og felur sig,
- en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.
- 4 Laun auðmýktar, ótta Drottins,
- eru auður, heiður og líf.
- 5 Þyrnar, snörur, eru á vegi hins undirförula,
- sá sem varðveitir líf sitt, kemur ekki nærri þeim.
- 6 Fræð þú sveininn um veginn, sem hann á að halda,
- og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja.
- 7 Ríkur maður drottnar yfir fátækum,
- og lánþeginn verður þræll lánsalans.
- 8 Sá sem ranglæti sáir, uppsker óhamingju,
- og sproti heiftar hans verður að engu.
- 9 Sá sem er góðgjarn, verður blessaður,
- því að hann gefur hinum fátæka af brauði sínu.
- 10 Rek þú spottarann burt, þá fer deilan burt,
- og þá linnir þrætu og smán.
- 11 Drottinn elskar hjartahreinan,
- konungurinn er vinur þess, sem hefir yndisþokka á vörum sér.
- 12 Augu Drottins varðveita þekkinguna,
- en orðum svikarans kollvarpar hann.
- 13 Letinginn segir: "Ljón er úti fyrir,
- ég kynni að verða drepinn úti á götunni."
- 14 Djúp gröf er munnur léttúðarkvenna,
- sá sem verður fyrir reiði Drottins, fellur í hana.
- 15 Ef fíflska situr föst í hjarta sveinsins,
- þá mun vöndur agans koma henni burt þaðan.
- 16 Að kúga fátækan eykur efni hans,
- að gefa ríkum manni verður til þess eins að gjöra hann snauðan.
- Orð hinna vitru
- 17 Hneig eyra þitt og heyr orð hinna vitru,
- og snú athygli þinni að kenning minni,
- 18 því að það er fagurt, ef þú geymir þau í brjósti þér,
- ef þau eru öll til taks á vörum þínum.
- 19 Til þess að traust þitt sé á Drottni,
- fræði ég þig í dag, já þig.
- 20 Vissulega skrifa ég kjarnyrði handa þér,
- með heilræðum og fræðslu,
- 21 til þess að ég kunngjöri þér sannleika, áreiðanleg orð,
- svo að þú flytjir þeim áreiðanleg orð, er senda þig.
- 22 Ræn eigi hinn lítilmótlega, af því að hann er lítilmótlegur,
- og knosa eigi hinn volaða í borgarhliðinu,
- 23 því að Drottinn mun flytja mál þeirra
- og ræna þá lífinu, er þá ræna.
- 24 Legg eigi lag þitt við reiðigjarnan mann
- og haf eigi umgengni við fauta,
- 25 til þess að þú venjist eigi á háttsemi hans
- og sækir snöru fyrir líf þitt.
- 26 Ver þú ekki meðal þeirra, er ganga til handsala,
- meðal þeirra, er ganga í ábyrgð fyrir skuldum,
- 27 því þegar þú ekkert hefir að borga með,
- viltu þá láta taka sængina undan þér?
- 28 Fær þú eigi úr stað hin fornu landamerki,
- þau er feður þínir hafa sett.
- 29 Sjáir þú mann vel færan í verki sínu,
- hann getur boðið konungum þjónustu sína,
- eigi mun hann bjóða sig ótignum mönnum.
- 23
1 Þegar þú situr til borðs með valdsherra,- þá gæt þess vel, hvern þú hefir fyrir framan þig,
- 2 og set þér hníf á barka,
- ef þú ert matmaður.
- 3 Lát þig ekki langa í kræsingar hans,
- því að þær eru svikul fæða.
- 4 Streist þú ekki við að verða ríkur,
- hættu að verja viti þínu til þess.
- 5 Hvort skulu augu þín hvarfla til auðsins, sem er svo stopull?
- Því að sannlega gjörir hann sér vængi
- eins og örn, sem flýgur til himins.
- 6 Et eigi brauð hjá nískum manni
- og lát þig ekki langa í kræsingar hans,
- 7 því að hann er eins og maður, sem reiknar með sjálfum sér.
- "Et og drekk!" segir hann við þig,
- en hjarta hans er eigi með þér.
- 8 Bitanum, sem þú hefir etið, verður þú að æla upp aftur,
- og blíðmælum þínum hefir þú á glæ kastað.
- 9 Tala þú eigi fyrir eyrum heimskingjans,
- því að hann fyrirlítur hyggindi ræðu þinnar.
- 10 Fær þú eigi úr stað landamerki ekkjunnar
- og gakk þú eigi inn á akra munaðarleysingjanna,
- 11 því að lausnari þeirra er sterkur -
- hann mun flytja mál þeirra gegn þér.
- 12 Snú þú hjarta þínu að umvöndun
- og eyrum þínum að vísdómsorðum.
- 13 Spara eigi aga við sveininn,
- því ekki deyr hann, þótt þú sláir hann með vendinum.
- 14 Þú slær hann að sönnu með vendinum,
- en þú frelsar líf hans frá Helju.
- Áminning föður
- 15 Son minn, þegar hjarta þitt verður viturt,
- þá gleðst ég líka í hjarta mínu,
- 16 og nýru mín fagna,
- er varir þínar mæla það sem rétt er.
- 17 Lát eigi hjarta þitt öfunda syndara,
- heldur ástunda guðsótta á degi hverjum,
- 18 því að vissulega er enn framtíð fyrir hendi,
- og von þín mun eigi að engu verða.
- 19 Heyr þú, son minn, og ver vitur
- og stýr hjarta þínu rétta leið.
- 20 Ver þú ekki með drykkjurútum,
- með þeim, sem hvoma í sig kjöt,
- 21 því að drykkjurútar og mathákar verða snauðir,
- og svefnmók klæðir í tötra.
- 22 Hlýð þú föður þínum, sem hefir getið þig,
- og fyrirlít ekki móður þína, þótt hún sé orðin gömul.
- 23 Kaup þú sannleika, og sel hann ekki,
- visku, aga og hyggindi.
- 24 Faðir réttláts manns fagnar,
- og sá sem gat vitran son, gleðst af honum.
- 25 Gleðjist faðir þinn og móðir þín
- og fagni hún, sem fæddi þig.
- 26 Son minn, gef mér hjarta þitt,
- og lát vegu mína vera þér geðfellda.
- 27 Því að skækja er djúp gröf
- og léttúðardrós þröngur pyttur.
- 28 Já, hún liggur í leyni eins og ræningi
- og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.
- Vínsvelgurinn
- 29 Hver æjar? hver veinar?
- hver á í deilum? hver kvartar?
- hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?
- 30 Þeir sem sitja við vín fram á nætur,
- þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.
- 31 Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er,
- hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.
- 32 Að síðustu bítur það sem höggormur
- og spýtir eitri sem naðra.
- 33 Augu þín munu sjá kynlega hluti,
- og hjarta þitt mun mæla fláræði.
- 34 Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi,
- já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.
- 35 "Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til,
- þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var.
- Hvenær mun ég vakna?
- Ég vil meira vín!"
- Orðskviðir um hyggindin
- 24
1 Öfunda ekki vonda menn- og lát þig ekki langa til að vera með þeim,
- 2 því að hjarta þeirra býr yfir ofríkisverkum,
- og varir þeirra mæla ógæfu.
- 3 Fyrir speki verður hús reist,
- og fyrir hyggni verður það staðfast,
- 4 fyrir þekking fyllast forðabúrin
- alls konar dýrum og yndislegum fjármunum.
- 5 Vitur maður er betri en sterkur
- og fróður maður betri en aflmikill,
- 6 því að holl ráð skalt þú hafa, er þú heyr stríð,
- og þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.
- 7 Viskan er afglapanum ofviða,
- í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.
- 8 Þann sem leggur stund á að gjöra illt,
- kalla menn varmenni.
- 9 Syndin er fíflslegt fyrirtæki,
- og spottarinn er mönnum andstyggð.
- 10 Látir þú hugfallast á neyðarinnar degi,
- þá er máttur þinn lítill.
- 11 Frelsaðu þá, sem leiddir eru fram til lífláts,
- og þyrm þeim, sem ganga skjögrandi að höggstokknum.
- 12 Segir þú: "Vér vissum það eigi," -
- sá sem vegur hjörtun, hann verður sannarlega var við það,
- og sá sem vakir yfir sálu þinni, hann veit það
- og mun gjalda manninum eftir verkum hans.
- 13 Et þú hunang, son minn, því að það er gott,
- og hunangsseimur er gómi þínum sætur.
- 14 Nem á sama hátt speki fyrir sálu þína,
- finnir þú hana, er framtíð fyrir hendi,
- og von þín mun eigi að engu verða.
- 15 Sit eigi, þú hinn óguðlegi, um bústað hins réttláta
- og eyðilegg ekki heimkynni hans,
- 16 því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur aftur upp,
- en óguðlegir steypast í ógæfu.
- 17 Gleð þig eigi yfir falli óvinar þíns,
- og hjarta þitt fagni eigi yfir því að hann steypist,
- 18 svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki,
- og hann snúi reiði sinni frá honum til þín.
- 19 Reiðst ekki vegna illgjörðamanna,
- öfunda eigi óguðlega,
- 20 því að vondur maður á enga framtíð fyrir höndum,
- á lampa óguðlegra slokknar.
- 21 Son minn, óttastu Drottin og konunginn,
- samlaga þig ekki óróaseggjum,
- 22 því að ógæfa þeirra ríður að þegar minnst varir,
- og ófarir beggja - hver veit um þær?
- Orðskviðir
- 23 Þessir orðskviðir eru líka eftir spekinga.
- Hlutdrægni í dómi er ljót.
- 24 Þeim sem segir við hinn seka: "Þú hefir rétt fyrir þér!"
- honum formæla menn, honum bölvar fólk.
- 25 En þeim sem hegna eins og ber, mun vel vegna,
- yfir þá kemur ríkuleg blessun.
- 26 Sá kyssir á varirnar,
- sem veitir rétt svör.
- 27 Annastu verk þitt utan húss og ljúk því á akrinum,
- síðan getur þú byggt hús þitt.
- 28 Vertu eigi vottur gegn náunga þínum að ástæðulausu,
- eða mundir þú vilja svíkja með vörum þínum?
- 29 Seg þú ekki: "Eins og hann gjörði mér, eins ætla ég honum að gjöra,
- ég ætla að endurgjalda manninum eftir verkum hans!"
- 30 Mér varð gengið fram hjá akri letingja nokkurs
- og fram hjá víngarði óviturs manns.
- 31 Og sjá, hann var allur vaxinn klungrum,
- hann var alþakinn netlum,
- og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.
- 32 En ég varð þess var, veitti því athygli,
- sá það og lét mér það að kenningu verða:
- 33 Sofa ögn enn, blunda ögn enn,
- leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,
- 34 þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi
- og skorturinn eins og vopnaður maður.
- Orðskviðasafn
- 25
1 Þetta eru líka orðskviðir Salómons,- er menn Hiskía Júdakonungs hafa safnað.
- 2 Guði er það heiður að dylja mál,
- en konungum heiður að rannsaka mál.
- 3 Eins og hæð himins og dýpt jarðar,
- svo eru konungahjörtun órannsakanleg.
- 4 Sé sorinn tekinn úr silfrinu,
- þá fær smiðurinn ker úr því.
- 5 Séu hinir óguðlegu teknir burt frá augliti konungsins,
- þá mun hásæti hans staðfestast fyrir réttlæti.
- 6 Stær þig eigi frammi fyrir konunginum
- og ryðst eigi í rúm stórmenna,
- 7 því að betra er að menn segi við þig: "Fær þig hingað upp!"
- heldur en að menn gjöri þér læging frammi fyrir tignarmanni.
- Hvað sem augu þín kunna að hafa séð,
- 8 þá ver eigi skjótur til málsóknar,
- því að hvað ætlar þú síðan að gjöra,
- þá er náungi þinn gjörir þér sneypu?
- 9 Rek þú mál þitt gegn náunga þínum,
- en ljósta eigi upp leyndarmáli annars manns,
- 10 til þess að sá sem heyrir það, smáni þig ekki
- og þú losnir aldrei við illan orðróm.
- 11 Gullepli í skrautlegum silfurskálum -
- svo eru orð í tíma töluð.
- 12 Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli,
- svo er vitur áminnandi heyranda eyra.
- 13 Eins og snjósvali um uppskerutímann,
- svo er áreiðanlegur sendimaður þeim er sendir hann,
- því að hann hressir sál húsbónda síns.
- 14 Ský og vindur, og þó engin rigning -
- svo er sá, sem hrósar sér af gjafmildi, en gefur þó ekkert.
- 15 Með þolinmæði verður höfðingja talið hughvarf,
- og mjúk tunga mylur bein.
- 16 Finnir þú hunang, þá et sem þér nægir,
- svo að þú verðir ekki ofsaddur af því og ælir því upp aftur.
- 17 Stíg sjaldan fæti þínum í hús náunga þíns,
- svo að hann verði ekki leiður á þér og hati þig.
- 18 Hamar og sverð og hvöss ör -
- svo er maður, sem ber falsvitni gegn náunga sínum.
- 19 Molnandi tönn og hrasandi fótur -
- svo er traust á svikara á neyðarinnar degi.
- 20 Að fara úr fötum í kalsaveðri -
- að hella ediki út í saltpétur -
- eins er að syngja skapvondum ljóð.
- 21 Ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta,
- og ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka,
- 22 því að þú safnar glóðum elds yfir höfuð honum,
- og Drottinn mun endurgjalda þér það.
- 23 Norðanvindurinn leiðir fram regn
- og launskraf reiðileg andlit.
- 24 Betri er vist í horni á húsþaki
- en sambúð við þrasgjarna konu.
- 25 Eins og kalt vatn er dauðþyrstum manni,
- svo er góð fregn af fjarlægu landi.
- 26 Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur,
- svo er réttlátur maður, sem titrar frammi fyrir óguðlegum manni.
- 27 Það er ekki gott að eta of mikið hunang,
- ver því spar á hólið.
- 28 Eins og borg, sem múrarnir hafa verið brotnir utan af,
- eins er sá maður, sem eigi hefir stjórn á skapsmunum sínum.
- 26
1 Eins og snjór um sumar og eins og regn um uppskeru,- eins illa á sæmd við heimskan mann.
- 2 Eins og spörfugl flögrar, eins og svala flýgur,
- eins er um óverðskuldaða formæling - hún verður eigi að áhrínsorðum.
- 3 Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum -
- en vöndurinn baki heimskingjanna.
- 4 Svara þú ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans,
- svo að þú verðir ekki honum jafn.
- 5 Svara þú heimskingjanum eftir fíflsku hans,
- svo að hann haldi ekki, að hann sé vitur.
- 6 Sá höggur af sér fæturna og fær að súpa á ranglæti,
- sem sendir orð með heimskingja.
- 7 Eins og lærleggir hins lama hanga máttlausir,
- svo er spakmæli í munni heimskingjanna.
- 8 Sá sem sýnir heimskum manni sæmd,
- honum fer eins og þeim, er bindur stein í slöngvu.
- 9 Eins og þyrnir, sem stingst upp í höndina á drukknum manni,
- svo er spakmæli í munni heimskingjanna.
- 10 Eins og skytta, sem hæfir allt,
- svo er sá sem leigir heimskingja, og sá er leigir vegfarendur.
- 11 Eins og hundur, sem snýr aftur til spýju sinnar,
- svo er heimskingi, sem endurtekur fíflsku sína.
- 12 Sjáir þú mann, sem þykist vitur,
- þá er meiri von um heimskingja en hann.
- 13 Letinginn segir: "Óargadýr er á veginum,
- ljón á götunum."
- 14 Hurðin snýst á hjörunum
- og letinginn í hvílu sinni.
- 15 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina,
- en honum verður þungt um að bera hana aftur upp að munninum.
- 16 Latur maður þykist vitrari
- en sjö, sem svara hyggilega.
- 17 Sá, sem kemst í æsing út af deilu, sem honum kemur ekki við,
- hann er eins og sá, sem tekur um eyrun á hundi, er hleypur fram hjá.
- 18 Eins og óður maður, sem kastar tundurörvum,
- banvænum skeytum,
- 19 eins er sá maður, er svikið hefir náunga sinn
- og segir síðan: "Ég er bara að gjöra að gamni mínu."
- 20 Þegar eldsneytið þrýtur, slokknar eldurinn,
- og þegar enginn er rógberinn, stöðvast deilurnar.
- 21 Eins og kol þarf til glóða og við til elds,
- svo þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur.
- 22 Orð rógberans eru eins og sælgæti,
- og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.
- 23 Eldheitir kossar og illt hjarta,
- það er sem sorasilfur utan af leirbroti.
- 24 Með vörum sínum gjörir hatursmaðurinn sér upp vinalæti,
- en í hjarta sínu hyggur hann á svik.
- 25 Þegar hann mælir fagurt, þá trú þú honum ekki,
- því að sjö andstyggðir eru í hjarta hans.
- 26 Þótt hatrið hylji sig hræsni,
- þá verður þó illska þess opinber á dómþinginu.
- 27 Sá sem grefur gröf, fellur í hana,
- og steinninn fellur aftur í fang þeim, er veltir honum.
- 28 Lygin tunga hatar þá, er hún hefir sundur marið,
- og smjaðrandi munnur veldur glötun.
- 27
1 Vertu ekki hróðugur af morgundeginum,- því að þú veist ekki, hvað dagurinn ber í skauti sínu.
- 2 Lát aðra hrósa þér og ekki þinn eigin munn,
- óviðkomandi menn, en ekki þínar eigin varir.
- 3 Steinar eru þungir, og sandurinn sígur í,
- en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja.
- 4 Heiftin er grimm, og reiðin er svæsin,
- en hver fær staðist öfundina?
- 5 Betri er opinber ofanígjöf
- en elska sem leynt er.
- 6 Vel meint eru vinar sárin,
- en viðbjóðslegir kossar hatursmannsins.
- 7 Saddur maður treður hunangsseim undir fótum,
- en hungruðum manni þykir allt beiskt sætt.
- 8 Eins og fugl, sem floginn er burt úr hreiðri sínu,
- svo er maður, sem flúinn er burt af heimili sínu.
- 9 Ilmolía og reykelsi gleðja hjartað,
- en indælli er vinur en ilmandi viður.
- 10 Yfirgef eigi vin þinn né vin föður þíns
- og gakk eigi í hús bróður þíns á óheilladegi þínum.
- Betri er nábúi í nánd en bróðir í fjarlægð.
- 11 Vertu vitur, sonur minn, og gleð hjarta mitt,
- svo að ég geti svarað þeim orði, sem smána mig.
- 12 Vitur maður sér ógæfuna og felur sig,
- en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.
- 13 Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan,
- tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlending.
- 14 Hver sem blessar náunga sinn snemma morguns með hárri raustu,
- það skal metið við hann sem formæling.
- 15 Sífelldur þakleki í rigningatíð
- og þrasgjörn kona - er hvað öðru líkt.
- 16 Sá er hana stöðvaði, gæti stöðvað vindinn
- og haldið olíu í hægri hendi sinni.
- 17 Járn brýnir járn,
- og maður brýnir mann.
- 18 Sá sem gætir fíkjutrés, mun eta ávöxt þess,
- og sá sem þjónar húsbónda sínum með virktum, mun heiður hljóta.
- 19 Eins og andlit horfir við andliti í vatni,
- svo er hjarta eins manns gagnvart öðrum.
- 20 Dánarheimar og undirdjúpin eru óseðjandi,
- svo eru og augu mannsins óseðjandi.
- 21 Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið,
- og maðurinn er dæmdur eftir orðstír hans.
- 22 Þótt þú steyttir afglapann í mortéli
- með stauti innan um grjón,
- þá mundi fíflska hans ekki við hann skilja.
- 23 Haf nákvæmar gætur á útliti sauða þinna
- og veit hjörðunum athygli þína.
- 24 Því að auður varir ekki eilíflega,
- né heldur kóróna frá kyni til kyns.
- 25 Sé heyið komið undan og grængresi komið í ljós,
- og hafi jurtir fjallanna verið hirtar,
- 26 þá átt þú lömb þér til klæðnaðar
- og geithafra til þess að kaupa fyrir akur
- 27 og nóga geitamjólk þér til fæðslu, til fæðslu heimili þínu,
- og til viðurlífis þernum þínum.
- 28
1 Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá,- en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.
- 2 Þegar land gengur undan drottnara sínum, gjörast þar margir höfðingjar,
- en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.
- 3 Maður sem er fátækur og kúgar snauða,
- er eins og regn, sem skolar burt korninu, en veitir ekkert brauð.
- 4 Þeir sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum,
- en þeir sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim.
- Illmenni skilja ekki hvað rétt er,
- en þeir sem leita Drottins, skilja allt.
- 6 Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni,
- heldur en sá, sem beitir undirferli og er þó ríkur.
- 7 Sá sem varðveitir lögmálið, er hygginn sonur,
- en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn, gjörir föður sínum smán.
- 8 Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri,
- safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka.
- 9 Sá sem snýr eyra sínu frá til þess að heyra ekki lögmálið,
- - jafnvel bæn hans er andstyggð.
- 10 Sá sem tælir falslausa menn út á vonda leið,
- hann fellur sjálfur í gröf sína,
- en ráðvandir munu hljóta góða arfleifð.
- 11 Ríkur maður þykist vitur,
- en snauður maður, sem er hygginn, sér við honum.
- 12 Þegar hinir réttlátu fagna, er mikið um dýrðir,
- en þegar óguðlegir komast upp, fela menn sig.
- 13 Sá sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn,
- en sá sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta.
- 14 Sæll er sá maður, sem ávallt er var um sig,
- en sá sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu.
- 15 Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn,
- svo er óguðlegur drottnari yfir lítilsigldum lýð.
- 16 Höfðingi, sem hefir litlar tekjur, er ríkur að kúgun,
- sá sem hatar rangfenginn ávinning, mun langlífur verða.
- 17 Sá maður, sem blóðsök hvílir þungt á,
- er á flótta fram á grafarbarminn; enginn dvelji hann.
- 18 Sá sem breytir ráðvandlega, mun frelsast,
- en sá sem beitir undirferli, fellur í gryfju.
- 19 Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði,
- en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, mettast af fátækt.
- 20 Áreiðanlegur maður blessast ríkulega,
- en sá sem fljótt vill verða ríkur, sleppur ekki við refsingu.
- 21 Hlutdrægni er ljót,
- en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.
- 22 Öfundsjúkur maður flýtir sér að safna auði
- og veit ekki að örbirgð muni yfir hann koma.
- 23 Sá sem ávítar mann, mun á síðan öðlast meiri hylli
- heldur er tungumjúkur smjaðrari.
- 24 Sá sem rænir foreldra sína og segir: "Það er engin synd!"
- hann er stallbróðir eyðandans.
- 25 Ágjarn maður vekur deilur,
- en sá sem treystir Drottni, mettast ríkulega.
- 26 Sá sem treystir eigin hyggjuviti, er heimskingi,
- en sá sem breytir viturlega, mun undan komast.
- 27 Sá sem gefur fátækum, líður engan skort,
- en þeim sem byrgir augu sín, koma margar óbænir.
- 28 Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig,
- en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum.
- 29
1 Sá sem oftlega hefir ávítaður verið, en þverskallast þó,- mun skyndilega knosaður verða, og engin lækning fást.
- 2 Þegar réttlátum fjölgar, gleðst þjóðin,
- en þegar óguðlegir drottna, andvarpar þjóðin.
- 3 Sá sem elskar visku, gleður föður sinn,
- en sá sem leggur lag sitt við skækjur, glatar eigum sínum.
- 4 Konungurinn eflir landið með rétti,
- en sá sem þiggur mútur, eyðir það.
- 5 Sá maður, sem smjaðrar fyrir náunga sínum,
- hann leggur net fyrir fætur hans.
- 6 Í misgjörð vonds manns er fólgin snara,
- en réttlátur maður fagnar og gleðst.
- 7 Réttlátur maður kynnir sér málefni hinna lítilmótlegu,
- en óguðlegur maður hirðir ekkert um að kynna sér það.
- 8 Spottarar æsa upp borgina,
- en vitrir menn lægja reiðina.
- 9 Þegar vitur maður á í þrætumáli við afglapa,
- þá reiðist hann og hlær, en hvíld fæst engin.
- 10 Blóðvargarnir hata hinn ráðvanda,
- en réttvísir menn láta sér annt um líf hans.
- 11 Heimskinginn úthellir allri reiði sinni,
- en vitur maður sefar hana að lokum.
- 12 Þegar drottnarinn hlýðir á lygaorð,
- verða allir þjónar hans bófar.
- 13 Fátæklingurinn og kúgarinn mætast,
- Drottinn ljær ljós augum beggja.
- 14 Sá konungur, sem dæmir hina lítilmótlegu með réttvísi,
- hásæti hans mun stöðugt standa að eilífu.
- 15 Vöndur og umvöndun veita speki,
- en agalaus sveinn gjörir móður sinni skömm.
- 16 Þegar óguðlegum fjölgar, fjölgar og misgjörðum,
- en réttlátir munu horfa á fall þeirra.
- 17 Aga þú son þinn, þá mun hann láta þig hafa ró
- og veita unað sálu þinni.
- 18 Þar sem engar vitranir eru, kemst fólkið á glapstigu,
- en sá sem varðveitir lögmálið, er sæll.
- 19 Þræll verður eigi agaður með orðum,
- því að hann skilur þau að vísu, en fer ekki eftir þeim.
- 20 Sjáir þú mann, sem er fljótfær í orðum,
- þá er meiri von um heimskingja en hann.
- 21 Dekri maður við þræl sinn frá barnæsku,
- vill hann að lokum verða ungherra.
- 22 Reiðigjarn maður vekur deilur,
- og bráðlyndur maður drýgir marga synd.
- 23 Hroki mannsins lægir hann,
- en hinn lítilláti mun virðing hljóta.
- 24 Þjófsnauturinn hatar líf sitt,
- hann hlýðir á bölvunina, en segir þó ekki frá.
- 25 Ótti við menn leiðir í snöru,
- en þeim er borgið, sem treystir Drottni.
- 26 Margir leita hylli drottnarans,
- en réttur mannsins kemur frá Drottni.
- 27 Andstyggð réttlátra er sá, sem ranglæti fremur,
- og andstyggð óguðlegra sá, sem ráðvandlega breytir.
- Spekiorð Agúrs
- 30
1 Orð Agúrs Jakesonar.- Guðmælið.
- Maðurinn segir: Ég hefi streitst, ó Guð,
- ég hefi streitst, ó Guð, og er að þrotum kominn.
- 2 Því að ég er of heimskur til að geta talist maður,
- og ég hefi eigi mannsvit,
- 3 ég hefi eigi lært speki,
- svo að ég hafi þekking á Hinum heilaga.
- 4 Hver hefir stigið upp til himna og komið niður?
- Hver hefir safnað vindinum í greipar sínar?
- Hver hefir bundið vatnið í skikkju sína?
- Hver hefir reist öll endimörk jarðar?
- Hvað heitir hann og hvað heitir sonur hans
- - fyrst þú veist það?
- 5 Sérhvert orð Guðs er hreint,
- hann er skjöldur þeim, er leita hælis hjá honum.
- 6 Bæt engu við orð hans,
- til þess að hann ávíti þig eigi og þú standir sem lygari.
- 7 Um tvennt bið ég þig,
- synja mér þess eigi, áður en ég dey:
- 8 Lát fals og lygaorð vera fjarri mér,
- gef mér hvorki fátækt né auðæfi,
- en veit mér minn deildan verð.
- 9 Ég kynni annars að verða of saddur og afneita
- og segja: "Hver er Drottinn?"
- eða ef ég yrði fátækur, kynni ég að stela
- og misbjóða nafni Guðs míns.
- 10 Ræg eigi þjóninn við húsbónda hans,
- svo að hann biðji þér ekki óbæna og þú verðir að gjalda.
- 11 Til er það kyn, sem bölvar föður sínum
- og blessar ekki móður sína,
- 12 kyn, sem þykist vera hreint
- og hefir þó eigi þvegið af sér saurinn
- 13 kyn, sem lyftir hátt augunum
- og sperrir upp augnahárin,
- 14 kyn, sem hefir sverð að tönnum
- og hnífa að jöxlum
- til þess að uppeta hina voluðu úr landinu
- og hina fátæku burt frá mönnunum.
- Orðskviðir í töluröð
- 15 Blóðsugan á tvær dætur, sem heita Gefðu! Gefðu!
- Þrennt er til, sem er óseðjandi,
- fernt, sem aldrei segir: "Það er nóg!" -
- 16 Helja og móðurlíf óbyrjunnar,
- jörðin, sem aldrei seðst af vatni,
- og eldurinn, sem aldrei segir: "Það er nóg!"
- 17 Það auga, sem gjörir gys að föður sínum
- og fyrirlítur hlýðni við móður sína,
- mega hrafnarnir við lækinn kroppa út
- og arnarungarnir eta.
- 18 Þrennt er, sem mér virðist undursamlegt,
- og fernt, sem ég skil eigi:
- 19 vegur arnarins um loftið,
- vegur höggormsins yfir klettinn,
- vegur skipsins um reginhaf
- og vegur manns hjá konu.
- 20 Þannig er atferli hórkonunnar:
- Hún neytir, þurrkar sér um munninn
- og segir: "Ég hefi ekkert rangt gjört."
- 21 Undan þrennu nötrar jörðin,
- og undir fernu getur hún ekki risið:
- 22 undir þræli, þegar hann verður konungur,
- og guðlausum manni, þegar hann mettast brauði,
- 23 undir smáðri konu, þegar hún giftist,
- og þernu, þegar hún bolar burt húsmóður sinni.
- 24 Fjórir eru smáir á jörðinni,
- og þó eru þeir vitrir spekingar:
- 25 Maurarnir eru kraftlítil þjóð,
- og þó afla þeir sér fæðunnar á sumrin.
- 26 Stökkhérarnir eru þróttlítil þjóð,
- og þó gjöra þeir sér híbýli í klettunum.
- 27 Engispretturnar hafa engan konung,
- og þó fer allur hópurinn út í röð og reglu.
- 28 Ferfætlunni getur þú náð með tómum höndunum,
- og þó er hún í konungahöllum.
- 29 Þrír eru þeir, sem tigulegir eru á velli,
- og fjórir, sem tigulegir eru í gangi:
- 30 ljónið, hetjan meðal dýranna,
- er eigi hopar fyrir neinni skepnu,
- 31 lendgyrtur hesturinn og geithafurinn
- og konungur, er enginn fær móti staðið.
- 32 Hafir þú heimskast til að upphefja sjálfan þig,
- eða hafir þú gjört það af ásettu ráði, þá legg höndina á munninn!
- 33 Því að þrýstingur á mjólk framleiðir smjör,
- og þrýstingur á nasir framleiðir blóð,
- og þrýstingur á reiði framleiðir deilu.
- Ráð til handa konungi
- 31
1 Orð Lemúels konungs í Massa, er móðir hans kenndi honum.
- 2 Hvað á ég að segja þér, sonur minn?
- og hvað, sonur kviðar míns?
- og hvað, sonur áheita minna?
- 3 Gef ekki konum kraft þinn,
- né ástarhót þín þeim er spilla konungum.
- 4 Ekki sæmir konungum, Lemúel,
- ekki sæmir konungum að drekka vín,
- né höfðingjum áfengur drykkur.
- 5 Þeir kynnu að drekka og gleyma lögunum
- og rangfæra málefni allra aumra manna.
- 6 Gefið áfengan drykk þeim, sem kominn er í örþrot,
- og vín þeim, sem sorgbitnir eru.
- 7 Drekki hann og gleymi fátækt sinni
- og minnist ekki framar mæðu sinnar.
- 8 Ljúk þú upp munni þínum fyrir hinn mállausa,
- fyrir málefni allra þeirra manna, sem eru að örmagnast.
- 9 Ljúk þú upp munni þínum, dæm með réttvísi
- og rétt þú hlut hinna voluðu og snauðu.
- Verkin lofa væna konu
- 10 Væna konu, hver hlýtur hana?
- hún er miklu meira virði en perlur.
- 11 Hjarta manns hennar treystir henni,
- og ekki vantar að honum fénist.
- 12 Hún gjörir honum gott og ekkert illt
- alla ævidaga sína.
- 13 Hún sér um ull og hör
- og vinnur fúslega með höndum sínum.
- 14 Hún er eins og kaupförin,
- sækir björgina langt að.
- 15 Hún fer á fætur fyrir dag,
- skammtar heimilisfólki sínu
- og segir þernum sínum fyrir verkum.
- 16 Hún hefir augastað á akri og kaupir hann,
- af ávexti handa sinna plantar hún víngarð.
- 17 Hún gyrðir lendar sínar krafti
- og tekur sterklega til armleggjunum.
- 18 Hún finnur, að atvinna hennar er arðsöm,
- á lampa hennar slokknar eigi um nætur.
- 19 Hún réttir út hendurnar eftir rokknum,
- og fingur hennar grípa snælduna.
- 20 Hún breiðir út lófann móti hinum bágstadda
- og réttir út hendurnar móti hinum snauða.
- 21 Hún er ekki hrædd um heimilisfólk sitt, þótt snjói,
- því að allt heimilisfólk hennar er klætt skarlati.
- 22 Hún býr sér til ábreiður,
- klæðnaður hennar er úr baðmull og purpura.
- 23 Maður hennar er mikils metinn í borgarhliðunum,
- þá er hann situr með öldungum landsins.
- 24 Hún býr til skyrtur og selur þær,
- og kaupmanninum fær hún belti.
- 25 Kraftur og tign er klæðnaður hennar,
- og hún hlær að komandi degi.
- 26 Hún opnar munninn með speki,
- og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar.
- 27 Hún vakir yfir því, sem fram fer á heimili hennar,
- og etur ekki letinnar brauð.
- 28 Synir hennar ganga fram og segja hana sæla,
- maður hennar gengur fram og hrósar henni:
- 29 "Margar konur hafa sýnt dugnað,
- en þú tekur þeim öllum fram!"
- 30 Yndisþokkinn er svikull og fríðleikinn hverfull,
- en sú kona, sem óttast Drottin, á hrós skilið.
- 31 Gefið henni af ávexti handa hennar,
- og verk hennar skulu lofa hana í borgarhliðunum.