Hin efsta sveit og ysta í Rangárvallasýslu heitir Land eða Landsveit. Í fornöld hefur þar verið fögur sveit og vel til byggðar fallin en nú er hún orðin eydd mjög sökum eldgangs úr Heklu, sem er rétt í austur af Landinu og skilur ekki annað en Rangá hin ytri og hálsar nokkrir sem Næfurholt stóð í, er um langan tíma hefur verið efstur bær austan Rangár eða á Rangárvöllum, en sá bær eyddist í síðasta Heklugosinu 1845 til '46.Rangá ytri rennur rétt með hálsi þeim er Næfurholt stendur í en ekki alllangt frá Næfurholti er fell eitt er Bjólfell heitir. Lengra upp með Rangá en æðikipp fyrir ofan alla byggð, bæði á Rangárvöllum og Landi, gengur gil mikið í austur-landnorður inn í hálsa þessa. Er það lukt klettum að ofan og umhverfis á báðar hliðar en opnast gegn útnorðri og vestri ofan að Rangá. Gil þetta heitir Tröllkonugil.
Efst á Landinu fyrir ofan Landskóga er mjög blásinn jarðvegur og sandrunninn. Það svæði heitir Kjallakatungur og liggja þær langt inn á afrétt milli Þjórsár að vestan og Rangár að austan allt inn fyrir Rangárbotna. Eru tungur þessar eyðisandar að kalla þegar inn eftir dregur og ekki ýkja breiðar þegar milli ánna þar sem Búrfell er fyrir vestan Þjórsá gegnt Kjallakatungum.
Í fyrndinni bjuggu tröllkonur tvær, önnur í Bjólfelli en hin í Búrfelli. Þær voru systur og féll vel á með þeim. Fór því tröllkonan úr Búrfelli oft að hitta systur sína austur yfir Þjórsá og Rangá, austur í Bjólfell, og eins má ætla að systir hennar úr Bjólfelli hafi gjört þótt þess sé ekki getið.
Búrfell er mjög klettótt og vegghamrar í öllum eggjum þess. Austan undir því miðju hér um bil eru klappir tvær sín hvorum megin Þjórsár, ekki allháar, og upp úr ánni milli klappanna standa tveir klettar ámóta háir og klappirnar svo að áin fellur þar í þrem kvíslum. Þessar stillur er sagt að tröllkonan úr Búrfelli hafi sett í Þjórsá svo að hún þyrfti ekki að væta sig í fæturna er hún fór að finna systur sína og stokkið þar yfir ána í þremur hlaupum. Heita nú klettar þessir síðan Tröllkonuhlaup.
Eftir endilöngum Kjallakatungum liggur vegur allra þeirra sem fara norður á Landmanna- og Holtamannaafrétti hvort sem þeir fara í fjárleitir eða til fiskifanga eða álftatekju og rótagraftar á afréttum þessum. Hafa þær ferðir mjög tíðkast að fornu og nýju á sumrum því að bæði eru á Landmannaafrétti einhver bestu veiðivötn hér á landi, þar sem Fiskivötn eru, og álftatekja mikil við þau og hvannstóð víða um afréttina.
Í Landsveit er bær einn heldur framarlega er Botnar heita eða þó heldur almennt nefndur Lækjarbotnar. Þar bjó í þann tíma er þessi saga gjörðist bóndi sá er Gissur hét.
Einhvern tíma hafði hann farið um sumar inn á afrétti til veiða og hafði hest í togi. Þegar hann þóttist hafa aflað nóg upp á hestinn tekur hann sig upp að innan og heldur heimleiðis. Ekki segir neitt af ferðum hans fyrr en hann kemur fram á Kjallakatungur gegnt Tröllkonuhlaupi. Heyrir hann þá kallað var í Búrfelli með ógurlegri rödd:
Er þá gegnt aftur jafnógurlega austur í Bjólfelli og sagt:
- "Systir, ljáðu mér pott."
Þá segir tröllkonan í Búrfelli:
- "Það er ekki gott.
- Hvað vilt þú með hann?"
Þá spyr hin í Bjólfelli:
- "Sjóða í honum mann."
Hin svarar:
- "Hver er hann?"
Í því verður Gissuri bónda litið upp í Búrfell og sér hann þá að tröllkonan ryðst ofan eftir hlíðinni og stefnir beint ofan að Tröllkonuhlaupi. Þykist hann þá sjá að hún muni ætla að gjöra alvöru úr hjali sínu og ekki muni seinna vænna fjöri að forða.
- "Gissur á Botnum,
- Gissur á Lækjarbotnum."
Sleppir þá Gissur taumnum á klyfjahestinum en slær upp á þann er hann reið er var afbragðs léttleikaskepna. Gissur gjörir hvorki að líta aftur né lina á hestinum og reið allt hvað hann mátti komast. En það þykist hann þó skilja að saman muni draga með tröllkonunni því æ heyrði hann betur og betur andköf hennar á hlaupinu. Hann heldur beinustu leið fram þvert Land og tröllkonan á eftir. En það vildi Gissuri til að Klofamenn sáu heiman að frá sér ferð hans og tröllkonunnar er þau komu á Merkurheiði.
Brugðu þeir þá skjótt við því þau bar brátt að og hringdu öllum kirkjuklukkunum í Klofa er Gissur slapp inn fyrir túngarðinn. Þegar tröllkonan missti af Gissuri kastaði hún exi sinni eftir honum svo að þegar hann kom heim á hlað féll hesturinn dauður niður undir honum en öxin var sokkin upp að auga í lend hestsins.
Þakkaði þá Gissur guði fagurlega lausn sína. En það er frá tröllkonunni að segja að henni varð svo bilt við er hún heyrði klukknahljóðið að hún ærðist og tók aftur á rás af öllum mætti. Sáu menn til ferða hennar af ýmsum bæjum á Landinu og stefndi hún miklu austar en til átthaga sinna því hún hélt skáhallt austur og upp, að sjá á Tröllkonugil, og þar fannst hún sprungin fáum dögum síðar. Dregur gilið af því nafn og heitir síðan Tröllkonugil.
Netútgáfan - maí 1997