LOPPA  OG  JÓN  LOPPUFÓSTRI



Á Bleiksmýrardal, afrétt Fnjóskdælinga, er skál sú í fjalli þar vestan megin ár, sem Loppuskál heitir. Sagt er, að skál þessi beri nafn af flagðkonu einni, er í fyrndinni hafi búið þar í helli, og að flagðkona þessi hafi eitt sinn stolið manni einum, er Jón hét, ungum manni og efnilegum, þegar hann var að tína grös með öðru fólki. Loppa hafði Jón heim í helli sinn, og var þar systir hennar fyrir, en ekki fleira trölla. Systurnar voru báðar í blóma aldurs síns, en með því að þá var kristni fyrir löngu komin um allt land, en tröll á förum, hugðu þær að hafa Jón þenna til fylgilags við sig, svo þær gætu aukið kyn sitt. Lögðu þær því alla alúð á að fara sem best með hann og létu hann ekkert skorta, sem eflt gæti þroska hans. Þær tóku hann oft og mökuðu hann í eins konar smyrslum og teygðu hann á milli sín. Líka orguðu þær í eyru honum til að trylla hann. Aldrei létu þær hann einan eftir í hellinum, og aldrei fór nema ein í senn til aðdráttanna. Liðu þannig nokkur missiri, að Jón fékk ekki sól að sjá og aldrei færi til burtfarar, sem hann hafði einatt löngun til, þó hann dyldi þær þess.

Eitt sinn hvarf systir Loppu, svo Jón vissi ekki, hvað af henni varð; fór hún eitthvað til búsaðdrátta, en kom aldrei aftur. Ætlaði hann, að hún mundi hafa látist á einhvern hátt. Varð Loppu mjög angursamt við missi systur sinnar, því hún trúði ekki vel fóstra sínum. Hlaut hún nú að starfa allt ein og láta Jón einan. Var hún þó aldrei svo lengi í burtu, að Jón sæi sér strokfæri; gjörir hann sér þá upp veiki og lést þungt haldinn. Þótti Loppu það hið mesta mein og bað hann segja sér, við hvað honum mundi batna, en hann sagði, að líkast væri, að sér mundi batna, ef hann fengi 12 ára gamlan hákarl. Loppa lofar að útvega honum hann. Býr hún sig nú til ferðar, fer af stað, en kemur brátt aftur til að forvitnast um, hvort fóstri hennar lægi kyrr, og var það; ætlaði hún, að þá mundi allt vera svikalaust og fer leið sína.

Litlu síðar rís Jón úr rekkju, fer út úr hellinum og niður til árinnar. Hittir hann stóðhross á dalnum og tekur eitt og ríður niður dalinn, og þraut það brátt, því svo var Jón þungur orðinn, að hann var óbær hverjum hesti. Fór hann svo alla leið niður til Illugastaða; hafði hann þá sligað þrjá hesta og þó mátt ganga mestalla leiðina. Þegar hann kemur sunnan á túnið á Illugastöðum, heyrir hann, að Loppa fóstra hans kallar uppi á Miðdegishólnum og segir:

"Hérna er tólf ára gamli hákarlinn, Jón! og þrettán ára þó; ég sótti hann á Siglunes."

Jón var yfirkominn af mæði, en hraðar þó ferðinni enn meir að kirkjunni, brýtur hurðina með hnefa sínum og biður, að klukkunni sé hringt; var Loppa þá komin að læk þeim, sem er skammt fyrir sunnan kirkjuna á túninu. En þegar hún heyrði klukknahljóðið, hvarf hún aftur; heitir þar síðan Tröllkonuvöllur.

Um Jón er það að segja, að svo var vöxtur hans mikill og afskaplegur orðinn, að höfuð hans tók mæni kirkjunnar, þá er hann stóð uppréttur í henni. Hann náði prestsfundi, lifði síðan þrjá daga og dó svo. Ætluðu menn, að mæðin af hlaupunum hefði dregið hann til dauða.

Lík hans var grafið í kirkjugarði við norðurhlið kirkjunnar á Illugastöðum, og er það því til sönnunar, að nálægt miðri 18. öld var þar grafið lík, og kom upp lærleggur svo mikill, að enginn hafði þvílíkan séð. Þá bjó bóndi sá á Steinkirkju, er Oddur hét; hann var faðir Þorlaugar, sem átti Dýnus Þorláksson og bjó með honum í Tungu í móðuharðindunum og missti þar í hallærinu ellefu börn sín. Oddur þessi var viðstaddur. Hann var hæstur manna í sókninni; hann tók legginn og mældi við sig, og nam leggurinn frá jörð mjaðmarhöfuð á Oddi. Var það fyrir satt haft, að leggur þessi væri úr Jóni Loppufóstra. Eitthvað fannst og fleira af beinum hans. Beinin voru mjög rotin, og ætluðu menn, að þau hefðu undra lengi í moldu legið, og það því heldur sem raun var á, að lík rotna mjög seint þar í garðinum, sem er kaldur og votur; viður fúnar þar og undra seint.



Netútgáfan - janúar 1998