SMALINN  Á  SILFRÚNARSTÖÐUM



Maður hefur Guðmundur heitið; hann bjó á Silfrúnarstöðum í Skagafirði. Hann var ríkur maður að gangandi peningi, vel metinn og virður. Hann var kvæntur, en varð þó eigi barna auðið.

Svo bar til á Silfrúnarstöðum einn jólaaftan, að smalamaður kom eigi heim um kvöldið. Beitarhúsin voru inn með fjallinu, á sama stað sem þau enn þá standa, og stóð fjármaður yfir fé á daginn, en gekk heim á kvöldin. Smalamanns var leitað, og fannst hann hvergi.

Næsta vor réð Guðmundur bóndi til sín smala, er Grímur hét. Hann var sterkur og stór maður og þóttist ekki uppnæmur fyrir hverju einu. Bóndi biður hann þó að fara varlega, og á aðfangadag jóla biður hann hann að láta snemma inn féð og koma heim í björtu; en Grímur kemur eigi um kvöldið, og var hans leitað daginn eftir, en fannst eigi; þótti mönnum þetta mjög undarlegt, og voru um það ýmsar tilgátur. Guðmundur bóndi varð mjög hryggur af þessum atburðum og fékk nú ekki framar nokkurn þann, er vildi verða smali hjá honum.

Í þá tíð bjó fátæk ekkja á Sjávarborg. Hún átti margt barna, og var elstur sonur hennar fjórtán ára að aldri, er Sigurður hét. Þennan dreng falaði Guðmundur bóndi fyrir smala og bauð móður hans mikið fé, ef hún lánaði sér drenginn. Sigurður hélt þessu máli mjög fram til þess að bæta kjör móður sinnar, en móður hans var það mjög í móti skapi; en svo fór, að Sigurður fór með Guðmundi bónda; smalaði hann fénu um sumarið og gekk ágæta vel. Gaf bóndi honum þá sauð og á með lambi, og þótti drengnum vænt um.

Guðmundur bóndi elskaði Sigurð mikið, og á aðfangadag jóla biður hann Sigurð fara varlega og koma heim fyrir dagsetrið. Sigurður stendur yfir fénu um daginn og rekur heim að húsum undir kvöldið. Þá heyrir hann þungt fótatak uppi í fjallinu, og sér hann þar flagðkonu koma, heldur ógurlega og ófrýnilega.

"Sæll, Sigurður minn," segir flagðkonan, "ég ætla nú að fá þig í pokann minn í kvöld."

"Vertu ekki að því arna," segir Sigurður, "ég er svo lítill og magur, að enginn fengur er í mér, en ég á hérna sauð og lamb, sem ég skal gefa þér í pottinn."

Afhendir hann henni þá sauðinn og lambið, og leggur hún hvort tveggja á herðar sér og leggur upp á fjallið. Sigurður kemur heim um kvöldið, og fagnar bóndi honum vel og spyr hann, hvort hann hefði einskis var orðið. Sigurður kvað nei við og sagði, að ekkert hefði fyrir sig borið. Varð nú bóndi mjög glaður við, að þessum bágindum létti af.

Eftir nýárið kemur bóndi að húsunum og skoðar féð; saknar hann þá sauðsins og lambsins, er Sigurður átti, og spyr hann Sigurð, hvað valdi. Hann kvað tófuna hafa rifið lambið, en sauðinn dottið ofan í, og kvaðst ekki mundu verða alls kostar heppinn með sauðaeignina. Bóndi gefur honum þá eina á og tvo sauði og biður hann að verða hjá sér eftirleiðis. Sigurður játti því, og líður nú af veturinn og sumarið og fram til næstu jóla.

Biður þá bóndi Sigurð fyrir hvern mun fara varlega og kvaðst elska hann eins og son sinn. Sigurður sagði, að ekkert væri að óttast og að hann mætti vera óhræddur. Á aðfangadagskvöld lætur Sigurður inn féð, og kemur þá flagðkonan til hans og segir, að nú skuli ekki lengur dragast að fá hann í soðið.

Sigurður sagði: "Ég er til, ef þú vilt, en þú sérð, að í mér er ekki niðurlag á við einn sauð, en nú skal ég gefa þér til jólanna tvo sauði og tvo geldinga; ertu ekki ánægð með það?"

"Láttu sjá," kvað flagðkonan.

Kom Sigurður fram með féð, og krækti flagðkonan þeim saman á hornunum og gekk á burt upp í hlíðina. Sigurður kom heim um kvöldið og kvaðst ekki hafa orðið var við neitt. Bónda þótti svo vænt um Sigurð, að hann gaf honum um sumarið fjóra sauði, og réðst Sigurður enn þá til hans.

Næsta jólaaftan lætur Sigurður féð inn, og kemur flagðkonan enn þá og vill taka hann; býður hann henni þá fjóra sauði, sem hann átti, en hún þá þá og krækir þeim upp á bak sér, þrífur síðan til Sigurðar og heldur á honum undir hendinni; tók hún síðan á rás upp í fjallið og að helli einum uppi í eggjunum; þar leggur hún niður byrðina og býður Sigurði að skera sauðina og raka svo gærurnar. Þegar Sigurður var búinn að því, spyr hann, hvað hann eigi nú að starfa; fær hún honum þá exi og biður hann að brýna svo vel, að bíti, því hún ætli að höggva hann með henni.

Sigurður gjörir það og fær henni svo öxina; hún skipar þá Sigurði að taka af hálsinum á sér, gjörir hann það, og bregður honum eigi; lagði þá tröllkonan frá sér öxina og kvaðst ekki hafa í hyggju að lífláta hann.

"Þú munt langlífur verða," kvað hún, "og mikill gæfumaður, og því hef ég hagað því svo, að þú yrðir smali á Silfrúnarstöðum, svo ég næði fundi þínum. Og vil ég nú segja þér þann veg, sem þú skalt ganga til gæfu þinnar. Í vor skaltu fara frá bónda og flytja að Ási í Hjaltadal; þar býr smiður góður, og skaltu læra hjá honum smíðar; en þegar þú ert fullnuma, skaltu gjöra þér ferð með varning og glingur að Miklabæ í Óslandshlíð. Þar eru þrjár dætur, er prófasturinn á, og er hin yngsta þeirra, er Margrét heitir, bestur kvenkostur á Íslandi. Hinar eldri systurnar eru gefnar fyrir glingur og stáss, og munu þær girnast það, er Margrét mun eigi vilja eiga. Þá skaltu biðja hana, þegar þú ferð, að fylgja þér til dyra, og þegar þar kemur, skaltu biðja hana að fylgja þér á vallarfót; mun hún gjöra það, og skaltu þá gefa henni þessa þrjá gripi, er ég nú fæ þér: klút, belti og hring, og muntu þá fá ást hennar. En þegar þig dreymir mig, skaltu vitja hingað aftur í helli minn, og mun ég þá látin; skaltu þá verpa haug að mér að fornum sið og taka það, sem fémætt er í helli mínum."

Skildu þau Sigurður að svo mæltu, og hélt Sigurður þá heim. Var þá bóndi orðinn mjög hryggur af burtveru hans og tók honum fegins huga og spurði, hvort hann hefði nú ekki orðið var við neitt. Neitaði Sigurður því og kvaðst ábyrgjast skyldi, að engan smala hans mundi framar saka.

Um vorið réðist Sigurður þaðan og að Ási í Hjaltadal og tók til smíðanna, og gekk honum það mjög greiðlega, svo að hann varð fullnuma eftir tveggja ára tíma. Hann hélt stöðugri vináttu við Guðmund bónda og kom þar oft.

Eitt sinn gjörir hann sér ferð í Hofsóssverslunarstað og kaupir þar glingur og fáséna hluti og heldur með það að Miklabæ; lætur hann þar varning falan og fallega klúta. Þegar þær eldri systur heyra þetta, biðja þær hann að láta engan sjá nema sig og lofa sér að velja úr. Sigurður hét því og sýnir þeim varninginn; keyptu þær margt af honum, en Margrét leit á og vildi ekki af hafa.

Þegar Sigurður kveður, biður hann Margréti að fylgja sér til dyra; hún gjörir svo; en þegar þar kemur, biður hann hana að fylgja sér á vallarfótinn, en hún kvaðst eigi vita, hvað slíkt ætti að þýða, að hann, ókenndur maður, beiddist þessa af sér, sem mætti virðast ósvinna. Sigurður biður hana því betur, og varð það af, að hún fór með honum. Gefur Sigurður henni þá gripina og biður hana vel að njóta og dregur hringinn á hönd henni.

"Feginn vildi ég ekki hafa þáð gripi þína," sagði Margrét, "og það finn ég, að sú náttúra fylgir þeim, að ég ekki get skilað þeim aftur, og verður það svo að vera." Skilja þau að svo búnu, og heldur Sigurður heim að Ási.

Margréti prófastsdóttur brá svo við gripina, að henni fannst, að hún engan mann gæti átt eða elskað annan en Sigurð og þótti sem hún eigi gæti án hans lifað, og urðu svo mjög brögð að þessu, að hún sagði föður sínum frá; hann leitaðist með öllu móti við að fá hana ofan af slíkri fásinnu og kvað slíkt aldrei mundu verða að sér lifandi. Setti þá Margréti hljóða og neytti þá hvorki svefns né matar; sá þá faðir hennar, að svo búið mátti ekki bíða, og tók sér ferð á hendur að Ási í Hjaltadal og ræður Sigurð til sín til smíða. Dvaldist Sigurður þar um hríð, og kom svo innan skamms á með Margréti og honum, að þau hétu hvort öðru ævinnum tryggðum, og var með samþykki föður hennar.

Litlu síðar dreymdi Sigurð flagðkonuna, og þóttist hann þá vita, að hún mundi vera dauð. Biður hann þá prófast að ríða með sér upp að Silfrúnarstöðum og gista þar hjá Guðmundi bónda. En þá Guðmundur bóndi heyrði, að Sigurður væri trúlofaður prófastsdóttur, sagðist hann vilja gjöra það uppskátt, sem sér hefði lengi búið í huga, og það var að arfleiða Sigurð að öllum fjármunum sínum, og bauð hann honum að taka við búi sínu og öllum fjármunum á næsta vori. Sigurður þakkaði bónda einkar vel, og prófastur varð glaður við, er hann sá dóttur sína komast að svo góðum efnum.

Daginn eftir bauð Sigurður prófasti og Guðmundi bónda að ganga með sér upp í fjallið; kemur hann þá að hellismunna einum upp undir fjallseggjum og kvað þeir skyldu óhræddir inn ganga. Sáu þeir þar þá flagðkonuna liggja dauða á gólfinu og var fremur ófrýnileg. Sagði Sigurður þeim þá upp alla söguna og bað þá hjálpa sér að koma flagðinu fyrir. Urðuðu þeir hana í grjótinu fyrir framan hellismunnann og gengu síðan innar í hellinn og fundu þar alls konar muni, fullklyfja á tíu hesta, sem Sigurður flutti heim að Silfrúnarstöðum. Hann var jafnan mikils metinn og hinn mesti lánsmaður til dauðadags.

Á veginum upp með Norðurá er mælt, að bæði megi sjá hellismunnann og grjótdysið fyrir neðan.



Netútgáfan - janúar 1998