Einu sinni var tröllskessa sem bjó í helli í fjalli einu og sem lifði á því að ræna frá mönnum þar í nánd.Þar í nánd var kona ein er átti son einan barna; hún var kvenskörungur mikill. Hún átti tafl mjög fagurt og hafði maðurinn hennar sálugi gefið henni það í morgungjöf og henni þótti því mjög vænt um það.
Einu sinni ferðaðist hún burt frá kofa sínum og sonur hennar með henni; var þá enginn heima. Tröllskessan komst að því og fór nú á stað til þess að sækja taflið og henni tókst það.
Skömmu síðar kom konan heim og sá að taflið var horfið og vissi nú hver valda mundi. Hún kallaði því á son sinn og sagði honum hvar komið var og kvaðst mundi drepa hann ef hann ekki sætti taflið.
Strákurinn fór hágrátandi á stað og kom til hellis skessunnar og er hún sá hann varð hún glöð og mælti við dóttur sína: "Þarna er kellingarstrákurinn, þú skalt sjóða hann handa mér á meðan ég er burtu, en fyrir alla muni skaltu halda upp á sinina og bittu hana við potteyrað."
Nú fór kelling á stað og stelpan ætlaði þegar að skera drenginn á háls. En hann bað hana sýna sér fyrst allar gersemar kellingar, og gerði hún það; síðan sagði hann við hana að betra væri að þau reyndu með sér í glímu, og það gjörðu þau, en svo fór að hún varð undir; þá tók hann af henni hnífinn og skar hana á háls og fór í föt hennar og tók að sjóða.
Hann var í vandræðum með sinina. En honum datt í hug gott ráð; hann hljóp út og að hesti sem var þar skammt frá og hjó undan honum skökulinn og batt við potteyrað; nú kom kelling heim og spurði: "Hélstu vel upp á stykkið mitt?"
"Já," mælti strákur, sem hún hélt væri dóttir sín.
Tók hún nú til stykkis síns og mælti: "Gott er það, en seigt er það."
Síðan tók hún að éta hin stykkin; þá heyrði hún að sagt er niðri í pottinum: "Æ, æ, þú ert að éta mig móðir mín, þú ert að éta mig móðir mín!"
Skessunni varð svo illt við að hún stökk út öskrandi, en í ofboðinu datt hún og hálsbrotnaði.
Drengurinn fór á stað með það sem hann gat borið af hinu og þessu og þar á meðal var taflið. Lýkur svo sögunni.
(Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar)
Netútgáfan - október 1999