Sestu hérna hjá mér
Sestu hérna hjá mér ástin mín
horfðu á sólarlagsins roðaglóð.
Særinn ljómar líkt og gullið vín
léttar bárur þar kveða þýðan óð.
Við öldunið og aftanfrið
er yndislegt að hvíla þér við lið.
Hve dýrlegt er í örmum þér
að una og gleyma sjálfum sér.
Jón frá Ljárskógum / Hawaiiskt þjóðlag